Site icon Konto – Faglegir rafrænir reikningar

Hvernig stofna ég aðgang sem bókari?

1. Veldu auðkenningarleið

Til að nýskrá þig á Konto þarftu fyrst að auðkenna þig.

Þú getur annað hvort:

Veldu þá leið sem hentar þér og smelltu á Nýskráning til að halda áfram.

2. Sláðu inn netfang og kennitölu

Næst slærðu inn:

Kennitalan er aðeins notuð til að staðfesta að þú eigir að hafa aðgang að notandanum.

Veldu land, hakaðu við að þú hafir lesið og samþykkt skilmála og smelltu svo á Nýskráning.

3. Veldu að þú sért bókari

Eftir nýskráningu kemur upp síða þar sem þú getur lokið við upplýsingar um aðganginn.

Flestar upplýsingar eru fylltar út sjálfkrafa. Ef þú ert bókari og ætlar eingöngu að nota aðganginn til að
aðstoða viðskiptavini þarftu ekki að fylla út bankaupplýsingar.

Smelltu neðst á síðunni á:

Smelltu hér ef þú ert bókari og þarft eingöngu aðgang til að aðstoða viðskiptavini þína

4. Bjóddu viðskiptavinum að tengjast þér

Þegar þú ert kominn inn á Stjórnborð bókara getur þú boðið viðskiptavinum að tengjast þér.

Smelltu á bláa hnappinn uppi í hægra horninu til að senda boð til viðskiptavinar.

Þegar viðskiptavinur hefur samþykkt boðið færðu aðgang til að aðstoða hann í Konto.

Ari Kaprasíus Kristjánsson
Exit mobile version