Site icon Konto – Faglegir rafrænir reikningar

Innlestur kostnaðareikninga í DK

1. Fyrst athuga almennar stillingar: 

Almennt > Fyrirtæki > Almennar stillingar > Haka við Vista tengdar skrár í gagnagrunn og velja flytja tengdar skrá yfir í gagnagrunn > F12 Staðfesta > F12 Staðfesta

2. Vista kostnaðarreikninga fyrir viðskiptavin í möppu og velja möppuna inn í DK

Þú þarft að byrja á því að búa til möppu í tölvunni hjá þér þar sem þú vistar kostnaðareikninga fyrir viðkomandi viðskiptavin. Gott er að hafa möppuna á sameignarsvæði ef aðrir bókarar þurfa einnig að hafa aðgang.

Svo ferðu í DK og velur möppuna með eftirfarandi hætti svo DK viti að það eigi að sækja kostnaðareikningana þangað.

Uppsetning > Almennar stillingar > Lánardrottnar – Innlestur reikninga – Slóð fyrir reikninga í skrám til innlesturs > F12 Staðfesta.

Svo til að keyra kostnaðarreikningana inn í DK er farið í Lánadrottnar > Skrá reikninga > F5 valmynd > Innlestur kostnaðarreikninga

Þá opnast þessi valmynd:

Hægt að stofna lánadrottinn hér eða skrá í fjárhagsdagbók

Þegar þú skráir lánadrottnareikning þá kemur rautt x við þá reiti sem eru skilyrtir (skylda að fylla út í). Ef valið að skrá í fjárhagsdagbók þá breytist hvaða reitir eru skilyrtir.

DK reynir að lesa reikninginn og skila upplýsingum í rétta reiti en það þarf alltaf að yfirfara allar upplýsingar til að fullvissa sig um að þeir séu réttir. 

Ef það á að vera samþykkjandi á reikningi þá er hægt að setja hann beint á reikning ef hann er ekki sjálfkrafa valinn. Ef skráður er fastur samþykkjandi á lánadrottnaspjaldinu þá kemur hann sjálfkrafa upp hér. 

Þú vinnur svo með færsluna (fyllir inn eins og við á) og smellir  svo á næsta.

Þegar búið er að vinna með alla reikningana þá smellir þú á uppfæra. 

Sjá leiðbeiningar hér hvernig þú sækir kostnaðarreikninga í Konto.

Exit mobile version