Setja upp dk-tengingu við Konto í vefþjónustu
dk-tenging Konto gerir dk-bókurum kleift að sækja kostnaðarskráningar og sölureikninga beint úr Konto í dk. Þú opnar Stillingar → Vefþjónusta, afritar API-lykilinn og slærð hann inn í dk — ferlið tekur aðeins nokkrar mínútur. Þegar tengingunni er lokið geturðu haldið áfram að virkja gervigreind og samþykki í Konto.
- 1
- 2
- 3
Stilltu dk-tenginguna í dk
Í dk ferðu í
Almennt → Umsjón → Konto tenging uppsetning:- Límdu API lykill og Notendanafn inn úr Konto.
- Vefslóðin
https://konto.is/api/v1/er þegar útfyllt. - Veldu sölureikninga í dk fyrir VSK-flokkana 0%, 11% og 24% ásamt sléttunarreikningi.
- Stilltu númeraröð fylgiskjala eftir þörfum.
Smelltu á „F12 Staðfesta“ til að vista dk-tenginguna. Næst geturðu virkjað gervigreind og samþykki í Konto.

Góð ráð
Geymdu API-lykilinn á öruggum stað
API-lykillinn veitir fullan aðgang að Konto-reikningnum þínum. Deildu honum aldrei í tölvupósti og geymdu hann í lykilorðageymslu eða á öðrum öruggum stað.
Veldu réttu VSK-lyklana í dk
Í uppsetningunni þarftu að tengja hvern VSK-flokk (0%, 11%, 24%) við viðeigandi sölureikning í dk. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við bókarann þinn áður en þú staðfestir.
Algengar spurningar um dk Konto tenging
Hvar finn ég API-lykilinn fyrir dk-tenginguna?
Í Konto: Smelltu á „Vefþjónusta“ á forsíðunni eða farðu í Stillingar → Vefþjónusta. Þar sérðu bæði NOTANDI og API LYKILL sem þú þarft fyrir uppsetninguna í dk.
Þarf ég sérstaka áskriftarleið hjá Konto til að nota dk-tenginguna?
Vefþjónustan í Konto er aðgengileg í öllum áskriftarleiðum. Skoðaðu konto.is/verd til að sjá hvað er innifalið í hverri leið.
Hvað gerist ef ég breyti eða endurnýja API-lykilinn í Konto?
Ef þú býrð til nýjan API-lykil í Konto þarf einnig að uppfæra hann í dk undir Almennt → Umsjón → Konto tenging uppsetning. Ef lykillinn stemmir ekki rofnar tengingin og dk getur ekki sótt gögn úr Konto.
Get ég tengt fleiri en eitt fyrirtæki í Konto við dk?
Já. Hvert fyrirtæki í Konto hefur sinn eigin API-lykil og notendanafn. Þú þarft að setja upp sérstaka tengingu við Konto í hverju dk-fyrirtæki fyrir sig.
Hvaða vefslóð á að nota í uppsetningunni í dk?
Rétta vefslóðin er https://konto.is/api/v1/. Hún ætti að vera útfyllt sjálfkrafa í dk. Gakktu úr skugga um að það séu engin bil og aðeins eitt skástrik í lok slóðarinnar.
Get ég prófað hvort dk-tengingin virki?
Þegar þú hefur staðfest uppsetninguna með „F12 Staðfesta“ í dk geturðu prófað tenginguna með því að reyna að sækja kostnaðarskráningar úr Konto. Ef villa kemur upp skaltu athuga hvort API-lykillinn og notendanafnið hafi verið rétt afrituð úr Stillingar → Vefþjónusta í Konto.
Spurningar? support@konto.is

