Virkja sjálfvirka kostnaðarskráningu (AI) og samþykki í Konto
Virkja sjálfvirka kostnaðarskráningu (AI) og samþykki í Konto
Þegar sjálfvirk kostnaðarskráning er virk les Konto hverja kvittun og hvert PDF-skjal sem viðskiptavinur hleður upp og býr til XML-reikning sem dk getur sótt. Þessar leiðbeiningar eru fyrir bókara — eða viðskiptavini — sem vinna í Konto. Forsenda er að viðskiptavinur sé í áskriftarleiðinni Sprotar, Vöxtur eða Sérlausnir og að tenging við dk sé uppsett (sjá leiðbeiningar 1: Uppsetning í dk).
- 1
- 2
- 3
Veldu hvort þörf sé á samþykki
Farðu í
Stillingar → Skrá kostnað. Þar er rofi: „Sjálfvirkt samþykkja nýjan kostnað“.- Kveikt (sjálfgefið): Nýr kostnaður fær stöðuna STOFNAÐ strax og er tilbúinn svo dk geti sótt hann.
- Slökkt: Nýr kostnaður fær stöðuna NÝTT þar til bókari samþykkir hann — hentar vel þegar þú vilt stjórna á hvaða safnlánardrottin hann bókast (sjá leiðbeiningar 4: Safnreikningar tengdir).

- 4
Skrá kostnað sem samþykktan
Þetta skref á aðeins við þegar slökkt er á sjálfvirku samþykki. Opnaðu kostnað með stöðuna NÝTT í kostnaðarskráningu og yfirfarðu tvennt:
- „Hvernig greitt“ — Í reikning, Banki, Kreditkort eða Lagt út fyrir. Þetta skiptir máli þegar lánardrottinn á bæði Sérnúmer 1 og 2 (sjá leiðbeiningar 4).
- „Nýta VSK“ — Sjálfgefið já fyrir innlenda reikninga, nei fyrir erlenda. Konto man valið fyrir hvern lánardrottin.
Smelltu síðan á „Skrá sem samþykkt“. Kostnaðurinn fær stöðuna STOFNAÐ og dk getur sótt hann. Næsti kostnaður með stöðuna NÝTT opnast sjálfkrafa.

Kostnaðarpósthólf
Viðskiptavinur getur framsent kvittanir á [kennitala]@kvittun.konto.is — þær berast beint inn í kostnaðarskráningu. Önnur netföng sendenda þarf að skrá undir Stillingar → Kostnaðarpósthólf.
Móttaka rafrænna reikninga
Í áskriftarleiðunum Sprotar, Vöxtur og Sérlausnir getur viðskiptavinur virkjað „Móttaka rafrænna reikninga“ án aukagjalds — þá berast XML-reikningar frá birgjum beint inn í kostnaðarskráningu og fara í gegnum sama samþykktarferli.
Algengar spurningar um sjálfvirk kostnaðarskráning
Á hvaða áskriftarleið þarf viðskiptavinur að vera til að nota sjálfvirka kostnaðarskráningu og fá XML-reikninga í dk?
Af hverju skilar kostnaður sér ekki í dk?
Get ég sent margar kvittanir í einum tölvupósti eða einu PDF-skjali?
Hvernig er VSK meðhöndlaður á erlendum reikningum?
Hvað verður um kostnað sem skráður var áður en AI-viðbótin var virkjuð?
Lánardrottnar → Skrá reikninga → F5-valmynd → „Ná í reikninga frá Konto“.Getur bókari virkjað þetta eða þarf viðskiptavinurinn að gera það sjálfur?
Spurningar? support@konto.is

