Sækja kostnaðarskráningar úr Konto í dk
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig á að sækja kostnaðarskráningar úr Konto í dk, laga viðvaranir, stofna reikninga og bóka. Þær eru ætlaðar bókarum sem færa bókhald í dk fyrir viðskiptavini Konto. Gakktu úr skugga um að viðskiptavinurinn sé tengdur dk og að sjálfvirk kostnaðarskráning sé virk í Konto.
- 1
- 2
Veldu tímabil og staðfestu
Settu inn tímabilið í reitina „Frá“ og „Til“ (útgáfudagsetning) og ýttu á F12 Staðfesta. Einnig berast kostnaðarreikningar sem skráðir voru á tímabilinu en bera eldri útgáfudagsetningu — þannig gleymist ekkert. Aðeins reikningar með stöðuna Stofnað í Konto eru sóttir. Þegar þeir hafa borist breytist staðan í Konto í Bókað og þeir koma ekki aftur sjálfkrafa.

- 3
Rautt tákn — stofna lánardrottin
Glugginn „Óstaðfestir rafrænir reikningar“ opnast með þeim reikningum sem voru sóttir. Rautt tákn þýðir að lánardrottinn er ekki til í dk. Hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna lánardrottinn“.
Til að skoða upprunalega PDF-skjalið: hægrismelltu → „Skoða viðhengi“.

- 4
Gult tákn — bókunarskilgreining VSK
Gult tákn þýðir að bókunarskilgreiningu vantar fyrir VSK-línu á reikningnum. Hægrismelltu á VSK-línuna og veldu annaðhvort:
- „Nota sjálfgefna bókunarskilgreiningu frá lánardrottni“ (Ctrl+D)
- „Búa til bókunarskilgreiningu“ (Ins)
Skilgreiningin er vistuð og notuð sjálfkrafa næst þegar reikningur berst frá sama lánardrottni.

- 5
Stofna reikning
Þegar engar viðvaranir eru eftir: hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna reikning“. Þú getur einnig skráð reikninginn á lánardrottin eða í innkaupakerfi og gert það að reglu fyrir svipaðar færslur. Næst fara reikningar frá þessum lánardrottni beint í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“.

- 6
Yfirfara og bóka
Í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ skoðarðu lánardrottin, dagsetningar, fjárhæð og VSK. Tvísmelltu á reikning til að sjá fulla færslu. Þú getur opnað upprunalega PDF-skjalið með möpputákninu undir „Viðhengi“.
Ef reikningur er í erlendum gjaldeyri skaltu leiðrétta gengið handvirkt (t.d. samkvæmt VISA-yfirliti). Ýttu svo á
F5 Valmynd → „Bóka reikninga“. Hægt er að bóka marga reikninga í einu — skildu þá reitinn „Tilvísun“ eftir tóman.
Eyða og endursækja
Ef reikningi er eytt úr „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ fer hann aftur í „Óstaðfestir rafrænir reikningar“. Ef honum er eytt þar líka hverfur hann úr dk. Til að sækja hann aftur: opnaðu kostnaðinn í Konto, breyttu honum og samþykktu aftur — hann fær þá stöðuna Stofnað og verður þá sóttur næst.
Rafrænir kostnaðarreikningar (XML)
Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Fræ birtist mynd eða PDF-skjal af kostnaðarreikningi frá Konto undir Innlestur kostnaðarreikninga í dk.
Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Sprotar, Vöxtur eða Sérlausnir berst allur kostnaður sem rafrænir reikningar (XML) frá Konto.
Kostnaðarreikningar í erlendum gjaldmiðli
Til að bóka rafræna reikninga frá erlendum lánadrottnum þarf bókari að vera með viðbótina Gjaldmiðlar í dk (hafðu samband við dk ef hana vantar).
Ef viðbótin er til staðar birtist valmöguleikinn Gjaldmiðlar undir Almennt og þá þarf ekki að aðhafast frekar.
Algengar spurningar um kostnaðarskráningar í dk
Af hverju skiluðu kostnaðarskráningar sér ekki í dk?
Aðeins reikningar með stöðuna Stofnað í Konto eru sóttir. Ef reikningurinn var þegar sóttur er staðan hans Bókað og hann er ekki sóttur aftur. Athugaðu einnig hvort útgáfudagsetning falli innan valins tímabils — eða hvort reikningurinn hafi verið skráður á tímabilinu.
Ég sótti rangt tímabil — hvað geri ég?
Þú getur sótt aftur fyrir rétt tímabil. Reikningar sem þegar hafa færst yfir í dk (með stöðuna Bókað í Konto) verða ekki sóttir aftur nema þeim sé eytt úr dk fyrst.
Get ég sótt sama reikning aftur?
Já, ef honum var eytt úr „Óstaðfestir rafrænir reikningar“ í dk geturðu opnað kostnaðinn í Konto, breytt honum og samþykkt aftur. Hann fær þá stöðuna Stofnað og skilar sér yfir næst þegar þú sækir.
Hvað þýðir rauða táknið?
Lánardrottinn á reikningnum er ekki til í dk. Hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna lánardrottinn“.
Hvað þýðir gula táknið?
VSK-línu á reikningnum vantar bókunarskilgreiningu. Hægrismelltu á VSK-línuna og veldu „Nota sjálfgefna bókunarskilgreiningu frá lánardrottni“ (Ctrl+D) eða „Búa til bókunarskilgreiningu“ (Ins). Skilgreiningin vistast og er notuð sjálfkrafa næst.
Hvernig leiðrétti ég gengi á erlendum reikningi?
Í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ geturðu breytt genginu handvirkt áður en þú bókar. Notaðu t.d. VISA-yfirlit til að finna rétt gengi á greiðsludegi.
Kortafærslur eða erlendar greiðslur lenda á röngum lánardrottni — hvað geri ég?
Þetta er leyst með safnlánardrottnum og sérnúmerum. Sjá leiðbeiningar um safnreikninga og sérnúmer.
Spurningar? support@konto.is
