Tengja dk-viðskiptavin við Konto

Leiðbeiningar · Bókarar

Tengja dk-viðskiptavin við Konto

Með tengingunni getur bókari sótt sölu og kostnað úr Konto og bókað í dk.

Athugaðu að tengingin er aðeins í boði fyrir notendur Konto í greiddri áskrift.

Til að tengja þarf að slá inn í dk notandanafn og API-lykil sem sótt er frá Konto aðgangi viðskiptavinar.

Ef þú ert með bókaraaðgang að Konto-aðgangi viðskiptavinarins geturðu sótt þessar upplýsingar sjálfur (nánar um bókaraðgang).

Eru kerfin þegar tengd?
Ef Konto aðgangur er þegar tengdur við dk þarf engu að breyta og þú getur farið beint í Skref 2: Virkja AI og samþykki í Konto.

  1. 1

    Opnaðu „Vefþjónustu“ til að tengja dk við Konto

    Skráðu þig inn á Konto-aðgang viðskiptavinarins. Farðu í Stillingar → Vefþjónusta.

    Opnaðu „Vefþjónustu“ til að tengja dk við Konto
  2. 2

    Afritaðu NOTANDA og API-LYKIL

    Hérna sérðu gildi fyrir NOTANDI og API-LYKILL. Þú skráir þessar upplýsingar inn í dk í næsta skrefi.

    tengja dk við Konto: Afritaðu NOTANDA og API-LYKIL
  3. 3

    Settu upp tenginguna í dk og staðfestu

    Í dk ferðu í Almennt → Umsjón → „Konto tenging uppsetning“. Fylltu inn eftirfarandi:

    • „API lykill“ og „Notendanafn“ — hér setur þú inn gildin úr Konto.
    • „Vefslóð“ — https://konto.is/api/v1/ er þegar fyllt inn; ekki breyta.
    • „Reikningar“ — veldu bókhaldslykla fyrir sölu með 0%, 11% og 24% VSK og afrúnun. Þú getur breytt lykli á hverri færslu áður en hún er bókuð í dk.
    • „Fylgiskjalsnúmer“ — veldu „Almennt fylgiskjalsnúmer“ eða „Sér fylgiskjalasería“ (eigin röð, t.d. K-0000).

    Ýttu á F12 Staðfesta. Tengingin er nú virk.

    tengja dk við Konto: Settu upp tenginguna í dk og staðfestu

Rafrænir kostnaðarreikningar (XML)

Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Fræ birtist mynd eða PDF-skjal af kostnaðarreikningi frá Konto undir Innlestur kostnaðarreikninga í dk.
Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Sprotar, Vöxtur eða Sérlausnir berst allur kostnaður sem rafrænir reikningar (XML) frá Konto.

Kostnaðarreikningar í erlendum gjaldmiðli

Til að bóka rafræna reikninga frá erlendum lánadrottnum þarf bókari að vera með viðbótina Gjaldmiðlar í dk (hafðu samband við dk ef hana vantar).
Ef viðbótin er til staðar birtist valmöguleikinn Gjaldmiðlar undir Almennt og þá þarf ekki að aðhafast frekar.

Algengar spurningar um tengja dk við Konto

Hvar finn ég NOTANDA og API-LYKIL til að tengja dk við Konto?
Farðu í Stillingar → Vefþjónusta → „Vefþjónustutenging“. Bókari með bókaraaðgang getur skoðað þetta sjálfur; annars biðurðu viðskiptavininn um að senda þér gildin.
Þarf ég að setja tenginguna upp aftur ef hún er þegar til staðar?
Nei. Eldri tengingin sem sótti myndir og PDF er enn virk og hún er einnig notuð fyrir nýju XML-kostnaðarskráningarnar. Engar breytingar þarf að gera á tengingunni í dk.
Þarf ég að gera þetta fyrir hvern viðskiptavin?
Já, einu sinni fyrir hvern viðskiptavin. Hvert Konto-fyrirtæki hefur eigin NOTANDA og API-LYKIL sem þú slærð inn í viðkomandi dk-skrá.
Til hvers eru bókhaldslyklarnir (0%, 11%, 24% VSK) notaðir?
Þessir lyklar koma sjálfkrafa inn þegar sölufærslur eru sóttar úr Konto inn í dk. Veldu þá sem eiga best við hjá viðkomandi viðskiptavini — þú getur breytt lykli á hverri færslu áður en hún er bókuð, svo valið hér er ekki endanlegt.
Hver er munurinn á „Sér fylgiskjalasería“ og „Almennt fylgiskjalsnúmer“?
„Sér fylgiskjalasería“ gefur Konto-færslum eigin númeraröð í dk (t.d. K-0001, K-0002) sem auðveldar leit og flokkun. „Almennt fylgiskjalsnúmer“ notar almenna númeraröðina og þú velur númer hverju sinni sem þú sækir færslur.

Spurningar? support@konto.is