Leiðbeiningar · Kröfur og innheimta

Greiðsluskrá Konto fyrir bankakröfur

Skráin sýnir þær kröfur sem voru greiddar á ákveðnu tímabili, ásamt upplýsingum um höfuðstól, dráttarvexti, innheimtukostnað og fjármagnstekjuskatt. Bókari getur notað skrána til að stofna kröfur í dk (eða öðru bókhaldskerfi) og stemma af sölu. Mikilvægt: Áður en bókað er í dk er mikilvægt að sækja fyrst söluna úr Konto. Þannig tryggir þú að allir skuldunautar séu til í dk áður en greiðsluskráin er lesin inn.

  1. 1

    Í Konto: Kröfur og innheimta > Greiðsluskrá

    Til að sækja greiðsluskrá ferðu í Aðgerðir og umsjón → Kröfur og innheimta.

    Því næst smellirðu á hnappinn „Greiðsluskrá“ (sjá mynd).

    Aðgerðir og umsjón > Kröfur og innheimta > Greiðsluskrá
  2. 2

    Sækja greiðsluskrá

    Þá opnast glugginn „Sækja greiðsluskrá“ þar sem þú velur viðkomandi greiðslutímabil, þ.e. tímabilið sem kröfurnar voru greiddar á.

    Gátreiturinn „Innheimtufyrirtæki sér um innheimtu fyrir mig“ stýrir því hvernig innheimtukostnaður á kröfu (ef við á) bókast í bókhaldskerfinu.

    • Hafðu óhakað (algengast) ef viðskiptavinurinn notar ekki innheimtuþjónustu eða notar innheimtuþjónustu Konto (enda rennur þá innheimtukostnaðurinn til viðskiptavinarins).
    • Hakaðu við ef viðskiptavinurinn lætur utanaðkomandi innheimtufyrirtæki sinna innheimtu fyrir sig, s.s. Inkasso, Gjaldskil eða Motus.

    Með því að setja músina yfir (i) geturðu séð nánari skýringu á því hvernig gátreiturinn virkar og hvenær hann á við.

    Smelltu síðan á „P141 TEXTASKRÁ“ til að sækja greiðsluskrána.

    Veldu greiðslutímabil og smelltu á P141 TEXTASKRÁ
  3. 3

    Í dk: Sækja innborganir

    Mikilvægt: Áður en bókað er í dk er mikilvægt að sækja fyrst söluna úr Konto. Þannig tryggir þú að allir skuldunautar séu til í dk áður en greiðsluskráin er lesin inn.

    Til að hlaða inn greiðsluskrá ferðu í Skuldunautar → Innheimtukerfi banka → Sækja innborganir.

    Smelltu síðan á „Velja skrá“ og veldu greiðsluskrána sem þú sóttir úr Konto.

    Settu inn „Fylgiskjalsnúmer“ (það þarf ekki að vera rétt – þú getur uppfært það seinna í ferlinu).

    Veldu „F12 Staðfesta“.

    Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Sækja innborganir
  4. 4

    Stofna kröfur út frá innborgunum

    Farðu síðan í „Skoða sóttar innborganir“.

    Þar velurðu F5 → Stofna kröfur út frá innborgunum.

    Skoða sóttar innborganir: F5 > Stofna kröfur út frá innborgunum
  5. 5

    Tímabil fyrir gjalddaga

    Hér seturðu inn „tímabil fyrir gjalddaga“.

    Við mælum með að setja inn mjög vítt tímabil, t.d. fjögur ár aftur í tímann og út yfirstandandi ár (t.d. 1.1.2022 – 31.12.2026) svo að allar kröfur sem voru greiddar á tímabilinu sem þú ert að bóka séu örugglega teknar með.

    Veldu „F12 Staðfesta“.

    Settu inn tímabil fyrir gjalddaga og veldu F12 Staðfesta
  6. 6

    Niðurstöður

    Þá birtist glugginn „Niðurstöður“ sem þú lokar með „ESC Hætta“.

    Lokaðu glugganum Niðurstöður með ESC Hætta
  7. 7

    Bóka innborganir

    Þú ert þá enn þá í „Skoða sóttar innborganir“ og velur þar F5 → Bóka innborganir.

    Skoða sóttar innborganir: F5 > Bóka innborganir
  8. 8

    Greiðslumáti og fylgiskjalsnúmer

    Þá opnast glugginn „Bóka innborganir“.

    Í „Greiðslumáti“ slærðu inn: ib

    Sláðu inn næsta „Fylgiskjalsnúmer“.

    Veldu „F12 Staðfesta“.

    Greiðslumáti: ib, næsta Fylgiskjalsnúmer, F12 Staðfesta
  9. 9

    Upplýsingar

    Þá birtist glugginn „Upplýsingar“ sem þú lokar.

    Lokaðu glugganum Upplýsingar
  10. 10

    Fjárhagur > Dagbók

    Farðu þá í Fjárhagur → Dagbók.

    Veldu að opna nýju dagbókina „Innborganir frá IB“.

    Fjárhagur > Dagbók: opnaðu Innborganir frá IB
  11. 11

    Yfirfara skráningu

    Þá opnast „Skráning dagbókar“.

    Þar velurðu F5 → Yfirfara skráningu.

    Skráning dagbókar: F5 > Yfirfara skráningu
  12. 12

    Val fyrir skýrslu - dagbók

    Þá opnast glugginn „Val fyrir skýrslu - dagbók“.

    Veldu „F6 Skjár“.

    Veldu F6 Skjár
  13. 13

    Skýrsla - Yfirfara skráningu

    Þá opnast „Skýrsla - Yfirfara skráningu“.

    Skýrslan ætti að vera villulaus.

    Í undantekningartilvikum, þegar dk les inn hundruð eða þúsundir krafna í einu, getur vantað kennitölu á örfáar færslur. Einnig kemur upp villa ef fylgiskjal (sölureikningur) vantar fyrir tiltekna kröfu.

    Til að laga villur þarftu að byrja á að slökkva á ritvörn. Það er gert með því að fara aftur í Skráning dagbókar → F5 Valmynd → Ritvörn.

    Síðan ferðu í dagbókina „Innborganir frá IB“, finnur línuna þar sem villan kemur fram og bætir við þeim upplýsingum (kennitölu) sem vantar.

    Skýrslan ætti að vera villulaus
  14. 14

    Prenta og uppfæra skráningu

    Í „Skráning dagbókar“ er hægt að velja F5 → Prenta skráningu ef bókarinn vill nota dagbókina sem fylgiskjal í bókhaldi (valkvætt).

    Að lokum er valið F5 → Uppfæra skráningu.

    Skráning dagbókar: F5 > Uppfæra skráningu

Spurningar? support@konto.is