Senda afhendingarseðil
Undir Aðgerðir og Umsjón er að finna Afhendingarseðlar umsjón (ath þessi valmöguleiki birtist aðeins þeim sem eru í greiddri áskrift)
Þar hefurðu yfirlit yfir alla afhendingarseðla sem þú hefur útbúið og getur einnig útbúið nýjan afhendingarseðil eða valið eldri afhendingarseðla til að sameina í einn reikning.
Með því að smella á ákveðinn afhendingarseðil færðu upp lista yfir þær aðgerðir sem þú getur framkvæmt. Ef þú smellir á Búa til reikning út frá afhendingarseðli þá stillir kerfið upp fyrir þig drögum að reikningi sem er alveg eins og afhendingarseðilinn. Þú getur síðan breytt reikningum eins og hentar áður en þú sendir hann
Þú getur einnig útbúið afhendingarseðil með því að velja Senda reikning á stjórnborðinu og velja síðan Senda afhendingarseðil