fbpx

Að útbúa reikning frá grunni.

Svona býrðu til þinn fyrsta reikning.

1. Velur að senda reikning og býrð til viðskiptavin.

2. Lætur inn kennitölu viðskiptavinar og smellir á sækja í þjóðskrá (flestar upplýsingar útfyllast sjálfkrafa)

Skráir netfang, velur greiðslufrest á reikningum (gjalddaga/eindaga) og hvernig þú vilt senda reikninga á þennan viðskiptavin. Velur svo að vista.

​​

3. Býrð til vöru með upphæðinni sem þú ætlar að láta á reikninginn og skoðar hvort þú viljir bæta einhverju í viðbótarupplýsingar og velur svo að "yfirfara og senda".

4. Að lokum skoðar þú reikninginn og velur svo að senda.