Hvernig nýskrái ég mig inná Konto?
Nýskráning er mjög einföld, þú velur að "skrá þig frítt" upp í hægra horninu svo slærðu inn símanúmerið þitt og færð skilaboð í símann.
Að því loknu slærðu inn uppáhalds netfangið þitt, ásamt kennitölu. (kennitölu fyrirtækis ef þú ert að stofna aðgang fyrir fyrirtæki). Klárar svo þetta skref með því að samþykkja skilmála okkar.
Í næsta glugga er útfyllt sjálfkrafa nafn, kennitala og heimilisfang, svo eina sem þarf að gera er að fylla útí bankaupplýsingarnar.
Að lokum færðu svo val um hvort þú viljir virkja bankatenginu og innheimtuþjónustu. Við mælum með að virkja báðar viðbætur svo þú einfaldir fyrir kúnnum þínum að greiða og að þú fáir greitt á réttum tíma.
Núna hefur þú búið til aðgang hjá Konto!