Sæktu Konto appið í símann
Konto appið auðveldar þér að skrá kostnað hvar sem þú ert — taktu mynd af kvittun og gervigreindin les birgi, dagsetningu, VSK og upphæð sjálfkrafa. Appið er fáanlegt fyrir iPhone (App Store) og Android (Google Play) og þú notar sömu innskráningu og á vefnum. Þetta er 4. hluti af 4 í lestrarröðinni „Skráðu kostnað eins og fagmaður“ — sjá einnig 1. hluta um gervigreind og samþykki, 2. hluta um tölvupóst og 3. hluta um XML reikninga.
- 1
Sæktu Konto appið í símann
Opnaðu App Store (iPhone) eða Google Play (Android), leitaðu að „Konto“ og settu upp appið frá Konto ehf. Þegar appið opnast birtist innskráningarskjárinn sjálfkrafa — kynningarskjárinn hverfur af sjálfu sér.
Ýttu á „Rafræn auðkenning“ og sláðu inn símanúmerið þitt — eða veldu innskráningu með tölvupósti, SMS eða Auðkennisappi.

- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
Konto appið lýkur kostnaðarskráningunni
Konto appið les kvittunina og fyllir sjálfkrafa inn birgi, dagsetningu, VSK og heildarupphæð. Ef sjálfvirkt samþykki er virkt verður færslan samþykkt strax — sjá 1. hluta um gervigreind og samþykki til að stilla þetta.
Ef færslan fær stöðuna Incomplete birtist sprettigluggi með lista yfir reiti sem tókst ekki að lesa. Þeir reitir eru einnig auðkenndir beint á skjánum. Ýttu á „Laga færsluna“ til að opna færsluna og leiðrétta þá. Þegar þú vistar staðfestir kerfið færsluna aftur sjálfkrafa — ef allt er í lagi hverfur Incomplete-staðan.

Góð ráð
Sléttu úr kvittuninni í góðu ljósi
Hafðu kvittunina slétta og í jöfnu ljósi — forðastu skugga og endurskin. Því betri sem myndin er, því nákvæmari er gervigreindin við að lesa hana.
Má henda kvittuninni?
Þegar kvittunin hefur verið skráð í Konto appið er mynd af henni geymd í kerfinu. Ráðfærðu þig samt við bókarann þinn áður en þú hendir frumskjalinu — reglur um varðveislu frumskjala geta verið mismunandi eftir atvinnugrein.
Skannaðu margar kvittanir í röð
Ef þú ert með fleiri en eina kvittun skaltu velja „Skrá meiri kostnað“ í skrefi 6. Þá ferðu beint aftur í skannann án þess að þurfa að fara í gegnum valmyndina aftur.
Algengar spurningar um Konto appið í símann
Er Konto-appið fáanlegt fyrir Android?
Já — leitaðu að „Konto“ í Google Play og sæktu appið frá Konto ehf. Ferlið er nákvæmlega það sama og á iPhone.
Hvað ef gervigreindin les eitthvað rangt?
Opnaðu færsluna í kostnaðarlistanum og ýttu á „Breyta“ til að leiðrétta reitina handvirkt.
Kostar það inneign að nota kostnaðarskannann?
Kostnaðarskráningin nýtir gervigreind Konto. Kynntu þér leiðbeiningar um sjálfvirka kostnaðarskráningu og samþykki til að fá nánari upplýsingar um inneign og stillingar.
Get ég hlaðið inn mynd sem var tekin áður?
Já — ýttu á + á stikunni neðst og veldu „Hlaða inn mynd fyrir kostnað“ til að velja mynd úr myndasafni símans í stað þess að skanna beint.
Hvað þýðir staðan „Incomplete“?
Ef Konto gat ekki lesið alla reiti á kvittuninni fær færslan stöðuna Incomplete. Þá birtist sprettigluggi með lista yfir þá reiti sem vantar og hnappi til að laga þá. Þegar þú vistar leiðréttinguna fer kerfið aftur yfir færsluna — ef allt er í lagi hverfur „Incomplete“ staðan sjálfkrafa.
Þarf ég sérstök innskráningargögn fyrir appið?
Nei — þú notar sömu rafrænu auðkenningu (símanúmer, tölvupóst eða Auðkennisapp) og á vef Konto. Aðgangurinn og öll gögn eru þau sömu í appinu og á vefnum.
Spurningar? support@konto.is

