Hvernig á að senda reikninga á mörg netföng í einu í Konto?
Konto býður upp á að reikningar séu sendir á mörg netföng í einu.
Á hverjum viðskiptavini sem þú skráir í Konto er skráð eitt aðalnetfang.
Þú getur síðan skráð eins mörg aukanetföng og þú vilt í reitinn Aukanetföng undir Viðbótarupplýsingar á viðskiptavinaspjaldinu.
Viðskiptavinir > veldu viðkomandi viðskiptavin > Viðbótarupplýsingar > Aukanetföng
Það þarf að vera komma á milli netfanga og ekkert bil. Dæmi: konto@konto.is,support@konto.is,hjalp@konto.is o.s.frv.
Ef þú vilt sent afrit af útgefnum reikningi á annað netfang þá velur þú: Yfirlit reikningar > velur viðkomandi reikning > Senda sem viðhengi með skilaboðum. Í boði er að senda XML útgáfu af reikningnum sem viðhengi með tölvupóstinum.