Leiðbeiningar · Verk

Verksíða og verkskýrsla fyrir viðskiptavininn

Með verksíðu og verkskýrslu í Konto geturðu deilt glæsilegri samantekt á verkinu með viðskiptavinum þínum — á sérstakri vefslóð eða sem PDF-skjali. Viðskiptavinurinn þarf ekki að skrá sig inn og getur skilið eftir athugasemdir sem þú svarar beint í Konto. Passaðu að verkið sé tilbúið með töskum, kostnaðarskráningu og reikningum (hluti 3) — við förum ekki yfir þau skref aftur hér.

  1. 1

    Verksíða og verkskýrsla — opnaðu og veldu hvað birtist

    Farðu í Aðgerðir og umsjón → Verk og opnaðu verkið. Á verkupplýsingarsíðunni smellirðu á „Aðgerðir“ og velur „Útbúa/breyta Verksíðu / Verkskýrslu“. Hakaðu við þá þætti sem þú vilt birta viðskiptavininum:

    • Tösk — sundurliðuð
    • Vinnuskráning
    • Kostnaður
    • Vörur / línuliðir
    • Reikningar með greiðslustöðu

    Haus fyrirtækis birtist alltaf. Smelltu á „Birta síðu“ þegar þú hefur valið.

    Smelltu á „Aðgerðir“ og veldu „Útbúa/breyta Verksíðu / Verkskýrslu“.
  2. 2

    Deildu hlekk á verksíðuna með viðskiptavininum

    Þegar síðan hefur verið útbúin birtist hlekkurinn ásamt þeim hlutum sem þú valdir í skrefi 1. Smelltu á „Afrita hlekk“ til að afrita hann og sendu viðskiptavininum — t.d. í tölvupósti eða SMS. Einnig er hægt að smella á „Opna síðu“ til að forskoða hana. Viðskiptavinurinn þarf ekki að skrá sig inn til að opna síðuna.

    Hakaðu við þá þætti sem eiga að birtast — og smelltu á „Afrita hlekk“ til að deila.
  3. 3

    Viðskiptavinurinn skrifar athugasemd á verksíðuna

    Á opinberu síðunni sér viðskiptavinurinn allar þær upplýsingar sem þú valdir í skrefi 1 — tösk, vinnuskráningu, kostnað, vörur og reikninga — og getur yfirfarið stöðu verksins án þess að skrá sig inn. Neðst á síðunni er athugasemdareitur þar sem hann getur skrifað spurningu og smellt á „Senda“. Hann þarf hvorki að skrá sig inn né vera með Konto-aðgang.

    Viðskiptavinurinn skrifar athugasemd eða spurningu beint á opinberu verksíðuna.
  4. 4

    Svaraðu athugasemd viðskiptavinarins í Konto

    Aftur í Konto: Opnaðu verkið og finndu nýju athugasemdina undir Athugasemdir frá viðskiptavin. Smelltu á hana, skrifaðu svar og sendu — viðskiptavinurinn sér svarið þitt á verksíðunni.

    Finndu nýju athugasemdina undir „Athugasemdir frá viðskiptavin“ og svaraðu þar.
  5. 5

    Sæktu verkskýrsluna sem PDF-skjal

    Smelltu á „Opna sem PDF-skjal“ á verksíðunni. Verkskýrslan opnast í nýjum flipa. Þú getur vistað skjalið, prentað eða sent það sem viðhengi í tölvupósti.

    Smelltu á „Opna sem PDF-skjal“ til að opna verkskýrsluna sem PDF.
  6. 6

    Bættu hlekk á verksíðuna við reikning

    Þegar þú stofnar reikning úr verkinu geturðu hakað við „Setja hlekk á verkefnasíðu á reikninginn“. Þá birtist View project-hlekkur undir reikningsupplýsingunum þegar viðskiptavinurinn opnar reikninginn — hann kemst þannig beint á verksíðuna án þess að þurfa að leita að hlekknum.

    Þetta er hluti 4 af 5. Haltu áfram í hluta 5 — aukanotendur í Tasklistanum, eða farðu til baka í hluta 3.

    Hakaðu við „Setja hlekk á verkefnasíðu á reikninginn“ þegar þú gefur út reikning.

Góð ráð

Verksíðan uppfærist sjálfvirkt

Allar breytingar á verkinu — ný tösk, nýr kostnaður, greiðsla á reikningi — endurspeglast strax á verksíðunni. Viðskiptavinurinn sér alltaf nýjustu stöðuna þegar hann opnar hlekkinn.

PDF eða verksíða?

Notaðu PDF þegar þú þarft að senda skjal í tölvupósti eða prenta, og verksíðuna þegar þú vilt að viðskiptavinurinn geti fylgst með breytingum í rauntíma og spurt spurninga.

Algengar spurningar um verksíða og verkskýrsla

Þarf viðskiptavinurinn að skrá sig inn til að sjá verksíðu og verkskýrslu?

Nei. Verksíðan er aðgengileg öllum sem hafa hlekkinn — það þarf hvorki að skrá sig inn né vera með Konto-aðgang.

Get ég valið hvað birtist á verksíðu og verkskýrslu?

Já. Þú velur hvort tösk, vinnuskráning, kostnaður, vörur og reikningar sjást á síðunni. Haus fyrirtækis birtist alltaf, óháð því hvað annað er valið.

Hvernig veit ég að viðskiptavinurinn hefur skilið eftir athugasemd?

Athugasemdirnar birtast undir „Athugasemdir frá viðskiptavin“ á verksíðunni í Konto. Þú getur svarað þar beint og svarið birtist viðskiptavininum á opinberu síðunni.

Fylgir Tasklistinn með Verk-viðbótinni?

Já. Allir sem eru með Verk-viðbótina fá einnig Tasklistann. Tími sem skráður er í Tasklistanum birtist á verkinu. Tasklistinn einn og sér er í boði sem viðbót frá Sprotar-áskriftinni.

Á hvaða áskriftarleið er Verk í boði?

Verk eru í boði frá og með áskriftarleiðinni Vöxtur (og Pro). Allir sem nota Verk hafa einnig aðgang að Tasklistanum. Sjá nánar á konto.is/verd.

Er hægt að loka verksíðunni þegar verkinu er lokið?

Já. Þú getur hvenær sem er tekið síðuna úr birtingu — þá virkar hlekkurinn ekki lengur fyrr en þú birtir hana aftur.

Hvernig bæti ég hlekk á verksíðuna við reikninginn?

Þegar þú stofnar reikning úr verkinu hakar þú við „Setja hlekk á verkefnasíðu á reikninginn“. Þá birtist hlekkurinn undir reikningsupplýsingunum þegar viðskiptavinurinn opnar reikninginn.

Spurningar? support@konto.is