Leiðbeiningar · Verk

Stofna verk í Konto

Þessar leiðbeiningar sýna þér hvernig þú stofnar verk í Konto — frá því að opna Verk og skilgreina umfang, þar til tösk eru tengd verkinu í Tasklistanum. Verkið safnar öllu sem tengist því á einn stað: umfangi, töskum, kostnaði, reikningum, skrám og síðu fyrir viðskiptavin. Verk er í boði í áskriftarleiðunum Vöxtur og Sérlausnir — og Tasklistinn fylgir sjálfkrafa með.

  1. 1

    Stofna verk í Konto — opnaðu Verk í valmyndinni

    Farðu í Aðgerðir og umsjón → Verk til að opna Verk. Ef þú ert þegar í Tasklistanum geturðu smellt á hnappinn „Verk“ efst til hægri — báðar leiðir fara á sama stað.

    Farðu í Aðgerðir og umsjón og smelltu á „Verk“ til að opna Verk-svæðið.
  2. 2

    Yfirlit verka — smelltu á „Nýtt verk“

    Yfirlitið sýnir öll verk fyrirtækisins og stöðu þeirra: Í vinnslu, Í bið, Lokið eða Reikningsfært. Þú getur leitað eftir heiti eða viðskiptavini. Smelltu á „Nýtt verk“ til að stofna verk í Konto.

    Listinn sýnir stöðu allra verka — smelltu á „Nýtt verk“ til að byrja.
  3. 3

    Veldu upphafspunkt og fylltu út verkupplýsingar

    Þegar þú smellir á „Nýtt verk“ velur þú fyrst hvort verkið byrji út frá sniðmáti, tilboði eða sem nýtt verk frá grunni.

    Fylltu síðan út grunnupplýsingarnar í reitunum á forminu:

    • Viðskiptavinur — veldu þann sem verkið tilheyrir.
    • Verkheiti — nafn verksins, t.d. Endurnýjun þaks — Húsfélag Brekku 12.
    • Verknúmer — Konto fyllir þetta út sjálfkrafa en þú getur breytt því. Þetta númer fer á reikninginn sem bókhaldstilvísun í bókhaldskerfi viðskiptavinarins.
    • Upphafsdagur og Áætlaður lokadagur.
    • Áætlað heildarverð.
    Innsláttarreitirnir á forminu: viðskiptavinur, verkheiti, verknúmer, dagsetningar og áætlað verð.
  4. 4

    Bættu við umfangslínum — þjónustu og vörum

    Smelltu á „Bæta við vöru / línu“ til að bæta við línum í umfangið:

    • Þjónustulínur — veldu þjónustu úr vöruskrá. Þú getur bætt við mörgum þjónustulínum — einni fyrir hvern verkþátt. Þær birtast á flipanum „Töskin“ á verkinu þínu eftir vistun en ekki sjálfkrafa í Tasklistanum.
    • Vörulínur — veldu vörur úr vöruskrá.

    Ef um er að ræða endurtekið verk skaltu smella á „Vista sem nýtt sniðmát“ — þú getur síðan byrjað á nýju verki út frá sniðmáti eða tilboði.

    Bættu við nokkrum umfangslínum — þjónustu og vörum — og skoðaðu heildarmyndina.
  5. 5

    Verk vistað — Verkupplýsingar opnast

    Eftir vistun opnast Verkupplýsingar með fullu yfirliti yfir verkið. Efst sérðu lykilupplýsingarnar:

    • Viðskiptavinur og Verkheiti
    • Upphafsdagur og Áætlaður lokadagur
    • Áætlað heildarverð og Verknúmer
    • Staða: Í vinnslu

    Neðar sérðu allar umfangslínurnar sem þú skráðir. Fliparnir efst á síðunni — Töskin, Kostnaður, Vörur og Reikningar — gefa þér aðgang að öllum þáttum verksins. Næstu skref kynna hvern flipa stuttlega; hluti 3 — Töskin, kostnaður og reikningar — fer í gegnum þá ítarlega.

    Hér sérðu fullt yfirlit: viðskiptavin, dagsetningar, verðmat, verknúmer og alla flipana.
  6. 6

    Kostnaðarflipi — kostnaðarskráningar á verkinu

    Á flipanum Kostnaður safnast saman allar kostnaðarskráningar sem tengdar eru verkinu — t.d. kaupreikningar sem samþykktir hafa verið og tengdir við verkið. Sjá nánar í hluta 3: Töskin, kostnaður og reikningar.

    Kostnaðarflipinn sýnir allan kostnað sem tengist verkinu.
  7. 7

    Vöruflipi — vörur og þjónusta á verkinu

    Á flipanum Vörur sérðu allar vörur og þjónustu sem eru hluti af umfangi verksins. Sjá nánar í hluta 3.

    Vöruflipinn sýnir vörur og þjónustu sem skráðar eru á verkið.
  8. 8

    Reikningaflipi — sölureikningar á verkinu

    Á flipanum Reikningar sérðu alla sölureikninga sem gefnir hafa verið út á verkið. Héðan geturðu gefið út reikning beint á viðskiptavininn. Sjá nánar í hluta 3.

    Reikningaflipinn sýnir alla sölureikninga sem gefnir hafa verið út á verkið.
  9. 9

    Flipinn Töskin — tösk tengd verkinu

    Á flipanum Töskin sérðu öll tösk sem tengjast verkinu. Flipinn er tómur þar til tösk eru tengd — næsta skref sýnir hvernig þú stofnar task í Tasklistanum og tengir það við verkið.

    Flipinn „Töskin“ sýnir öll tösk sem tengjast verkinu — hann fyllist þegar tösk eru tengd.
  10. 10

    Tengdu task við verk í Tasklistanum

    Farðu í Tasklistann og smelltu á „Búa til nýtt task“. Veldu viðskiptavin og því næst verkið þitt í reitnum Verkefni (valkvætt). Veldu þjónustu og vistaðu — taskið birtist bæði í Tasklistanum og á flipanum „Töskin“ á verkinu þínu.

    Í Tasklistanum velurðu verkið þitt í „Verkefni (valkvætt)“ þegar þú stofnar task.
  11. 11

    Bæta öðru taski við sama verk

    Á flipanum „Töskin“ á verkinu þínu sérðu öll tengd tösk. Til að bæta öðru taski við sama verk ferðu í Tasklistann, smellir á „Búa til nýtt task“ og velur sama verk í „Verkefni (valkvætt)“. Sjá fyrsta hluta um Tasklistann og tímaskráningu til að skrá tíma á tösk.

    Flipinn „Töskin“ sýnir öll tengd tösk á verkinu þínu.

Góð ráð

Sniðmát spara tíma við endurtekin verk

Þegar formið er útfyllt smellirðu á „Vista sem nýtt sniðmát“. Næst þegar þú stofnar verk í Konto geturðu byrjað beint út frá sniðmátinu — viðskiptavinur, umfang og verknúmer eru þá þegar útfyllt.

Verk og Tasklistinn fara alltaf saman

Allir sem hafa Verk-viðbótina fá einnig Tasklistann sjálfkrafa. Tímaskráningar í Tasklistanum birtast á viðkomandi verki á flipanum „Töskin“.

Algengar spurningar um stofna verk í Konto

Hvernig stofna ég verk í Konto?

Farðu í Aðgerðir og umsjón → Verk og smelltu á „Nýtt verk“. Veldu viðskiptavin, fylltu út „Verkheiti“, verknúmer og dagsetningar og vistaðu. Konto stofnar verkið strax og opnar Verkupplýsingar.

Í hvaða áskrift er Verk í boði?

Verk er viðbót sem er í boði í áskriftarleiðunum Vexti og Sérlausnum. Tasklistinn fylgir sjálfkrafa með Verk-viðbótinni.

Til hvers er verknúmerið notað?

Verknúmerið fer á reikninginn sem bókhaldstilvísun og skilar sér í bókhaldskerfi viðskiptavinarins þegar reikningurinn er móttekinn. Konto fyllir þetta út sjálfkrafa en þú getur breytt því áður en þú vistar.

Fylgir Tasklistinn með Verk-viðbótinni?

Já, allir sem eru með Verk-viðbótina fá Tasklistann sjálfkrafa. Tímaskráningar í Tasklistanum birtast á viðkomandi verki undir flipanum „Töskin“.

Hvernig er task tengt við verk?

Stofnaðu task í Tasklistanum og veldu verkið þitt í reitnum „Verkefni (valkvætt)“. Taskið birtist þá bæði í Tasklistanum og undir flipanum „Töskin“ á verkinu þínu.

Geta þjónustulínur í umfangi orðið að töskum í Tasklistanum?

Þjónustulínur sem settar eru í umfang verks birtast undir flipanum „Töskin“ á verkinu þínu, en ekki sjálfkrafa í Tasklistanum. Til að task birtist í Tasklistanum þarftu að stofna það beint þar og velja verkið þitt í reitnum „Verkefni (valkvætt)“.

Get ég stofnað verk út frá tilboði eða sniðmáti?

Já. Þegar þú velur „Nýtt verk“ geturðu valið að byggja það á sniðmáti eða tilboði í stað þess að fylla út formið frá grunni.

Hvar sé ég yfirlit yfir öll verk?

Farðu í Aðgerðir og umsjón → Verk. Þar sérðu öll verk með stöðu og getur leitað eftir heiti eða viðskiptavini.

Spurningar? support@konto.is