fbpx

Virkja aðgang sem bókari (umboðsaðili)

Notendur Konto geta nú veitt þriðja aðila aðgang að Konto reikningakerfinu.

Lausnin er ókeypis fyrir umboðsaðila (aðgengileg sem viðbót í Grunnur áskriftarleiðinni).

Umboðsaðilar geta verið með einn aðgang fyrir marga viðskiptavini (tengda aðila). Einfaldlega hoppaðu á milli notenda til að skoða reikninga, kostnaðarskráningu og skýrslur, auk þess að stofna reikninga, viðskiptavini, vörur eða skrá kostnað. 

Fullkomið fyrir bókara (og aðra aðila) til að fá aðgang að reikningakerfi hjá mörgum aðilum í gegnum einn einfaldan aðgang.

Eftir að þú klára að virkja umboðsaðilaaðganginn þá mætir þér Stjórnborð bókara.

Á stjórnborðinu hefur þú yfirlit yfir alla þá Konto notendur sem hafa veitt þér aðgang.

Til að fara inn á aðgang viðkomandi notanda smellir þú á Innskrá sem notandi. Til að komast aftur á stjórnborðið smellir þá velur þú HEIM takkann efst upp í vinstra horninu. 

Í stjórnborðinu getur þú einnig skoðað lykiltölur um viðskiptavin, sótt VSK skýrslu eða kostnaðarreikninga beint úr stjórnborðinu. Þeir valmöguleikar birtast ef smellt er á píluna lengst til hægri í hverri línu.  

Sem skráður umboðsaðili getur þú sent boð um að tengjast á netföng. Ef viðkomandi er ekki notandi eða ekki í greiddri áskrift, þá fær viðkomandi að prófa FRÆ áskrift ókeypist í einn mánuð.

Notendur geta einnig valið að senda þér boð um að fá aðgang að þeirra notanda með sambærilegum hætti. Umboðsaðili fær þá tölvupóst og virkjar tengingu með því að smella á hlekkinn í tölvupóstinum. Eftir að tengingin er komin á, birtist viðkomandi notandi í stjórnborði bókara.