Tengja dk-viðskiptavin við Konto
Tengja dk-viðskiptavin við Konto
Með tengingunni getur bókari sótt sölu og kostnað úr Konto og bókað í dk.
Athugaðu að tengingin er aðeins í boði fyrir notendur Konto í greiddri áskrift.
Til að tengja þarf að slá inn í dk notandanafn og API-lykil sem sótt er frá Konto aðgangi viðskiptavinar.
Ef þú ert með bókaraaðgang að Konto-aðgangi viðskiptavinarins geturðu sótt þessar upplýsingar sjálfur (nánar um bókaraðgang).
Eru kerfin þegar tengd?
Ef Konto aðgangur er þegar tengdur við dk þarf engu að breyta og þú getur farið beint í Skref 2: Virkja AI og samþykki í Konto.
- 1
- 2
- 3
Settu upp tenginguna í dk og staðfestu
Í dk ferðu í
Almennt → Umsjón → „Konto tenging uppsetning“. Fylltu inn eftirfarandi:- „API lykill“ og „Notendanafn“ — hér setur þú inn gildin úr Konto.
- „Vefslóð“ —
https://konto.is/api/v1/er þegar fyllt inn; ekki breyta. - „Reikningar“ — veldu bókhaldslykla fyrir sölu með 0%, 11% og 24% VSK og afrúnun. Þú getur breytt lykli á hverri færslu áður en hún er bókuð í dk.
- „Fylgiskjalsnúmer“ — veldu „Almennt fylgiskjalsnúmer“ eða „Sér fylgiskjalasería“ (eigin röð, t.d. K-0000).
Ýttu á F12 Staðfesta. Tengingin er nú virk.

Rafrænir kostnaðarreikningar (XML)
Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Fræ birtist mynd eða PDF-skjal af kostnaðarreikningi frá Konto undir Innlestur kostnaðarreikninga í dk.
Ef viðskiptavinur er í áskriftinni Sprotar, Vöxtur eða Sérlausnir berst allur kostnaður sem rafrænir reikningar (XML) frá Konto.
Kostnaðarreikningar í erlendum gjaldmiðli
Til að bóka rafræna reikninga frá erlendum lánadrottnum þarf bókari að vera með viðbótina Gjaldmiðlar í dk (hafðu samband við dk ef hana vantar).
Ef viðbótin er til staðar birtist valmöguleikinn Gjaldmiðlar undir Almennt og þá þarf ekki að aðhafast frekar.
Algengar spurningar um tengja dk við Konto
Hvar finn ég NOTANDA og API-LYKIL til að tengja dk við Konto?
Stillingar → Vefþjónusta → „Vefþjónustutenging“. Bókari með bókaraaðgang getur skoðað þetta sjálfur; annars biðurðu viðskiptavininn um að senda þér gildin.Þarf ég að setja tenginguna upp aftur ef hún er þegar til staðar?
Þarf ég að gera þetta fyrir hvern viðskiptavin?
Til hvers eru bókhaldslyklarnir (0%, 11%, 24% VSK) notaðir?
Hver er munurinn á „Sér fylgiskjalasería“ og „Almennt fylgiskjalsnúmer“?
Spurningar? support@konto.is

