Sækja kostnaðarskráningar úr Konto í dk

Leiðbeiningar · Bókarar

Sækja kostnaðarskráningar úr Konto í dk

Þessar leiðbeiningar sýna hvernig á að sækja kostnaðarskráningar úr Konto í dk, laga viðvaranir, stofna reikninga og bóka. Þær eru ætlaðar bókarum sem færa bókhald í dk fyrir viðskiptavini Konto. Gakktu úr skugga um að viðskiptavinurinn sé tengdur dk og að sjálfvirk kostnaðarskráning sé virk í Konto.

  1. 1

    Opnaðu valmyndina fyrir kostnaðarskráningar í dk

    Farðu í Lánardrottnar → Skrá reikninga → F5 Valmynd og veldu „Sækja kostnaðarreikninga frá Konto“.

    Opnaðu valmyndina fyrir kostnaðarskráningar í dk
  2. 2

    Veldu tímabil og staðfestu

    Settu inn tímabilið í reitina „Frá“ og „Til“ (útgáfudagsetning) og ýttu á F12 Staðfesta. Einnig berast kostnaðarreikningar sem skráðir voru á tímabilinu en bera eldri útgáfudagsetningu — þannig gleymist ekkert. Aðeins reikningar með stöðuna Stofnað í Konto eru sóttir. Þegar þeir hafa borist breytist staðan í Konto í Bókað og þeir koma ekki aftur sjálfkrafa.

    kostnaðarskráningar í dk: Veldu tímabil og staðfestu
  3. 3

    Rautt tákn — stofna lánardrottin

    Glugginn „Óstaðfestir rafrænir reikningar“ opnast með þeim reikningum sem voru sóttir. Rautt tákn þýðir að lánardrottinn er ekki til í dk. Hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna lánardrottinn“.

    Til að skoða upprunalega PDF-skjalið: hægrismelltu → „Skoða viðhengi“.

    kostnaðarskráningar í dk: Rautt tákn — stofna lánardrottin
  4. 4

    Gult tákn — bókunarskilgreining VSK

    Gult tákn þýðir að bókunarskilgreiningu vantar fyrir VSK-línu á reikningnum. Hægrismelltu á VSK-línuna og veldu annaðhvort:

    • „Nota sjálfgefna bókunarskilgreiningu frá lánardrottni“ (Ctrl+D)
    • „Búa til bókunarskilgreiningu“ (Ins)

    Skilgreiningin er vistuð og notuð sjálfkrafa næst þegar reikningur berst frá sama lánardrottni.

    kostnaðarskráningar í dk: Gult tákn — bókunarskilgreining VSK
  5. 5

    Stofna reikning

    Þegar engar viðvaranir eru eftir: hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna reikning“. Þú getur einnig skráð reikninginn á lánardrottin eða í innkaupakerfi og gert það að reglu fyrir svipaðar færslur. Næst fara reikningar frá þessum lánardrottni beint í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“.

    kostnaðarskráningar í dk: Stofna reikning
  6. 6

    Yfirfara og bóka

    Í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ skoðarðu lánardrottin, dagsetningar, fjárhæð og VSK. Tvísmelltu á reikning til að sjá fulla færslu. Þú getur opnað upprunalega PDF-skjalið með möpputákninu undir „Viðhengi“.

    Ef reikningur er í erlendum gjaldeyri skaltu leiðrétta gengið handvirkt (t.d. samkvæmt VISA-yfirliti). Ýttu svo á F5 Valmynd → „Bóka reikninga“. Hægt er að bóka marga reikninga í einu — skildu þá reitinn „Tilvísun“ eftir tóman.

    kostnaðarskráningar í dk: Yfirfara og bóka

Eyða og endursækja

Ef reikningi er eytt úr „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ fer hann aftur í „Óstaðfestir rafrænir reikningar“. Ef honum er eytt þar líka hverfur hann úr dk. Til að sækja hann aftur: opnaðu kostnaðinn í Konto, breyttu honum og samþykktu aftur — hann fær þá stöðuna Stofnað og verður þá sóttur næst.

Sala úr Konto

Sölu- og kreditreikningar úr Konto eru lesnir sérstaklega inn, í dagbók — sjá leiðbeiningar 5: Sækja sölureikninga í dk.

Kostnaðarskráningar í dk — aðeins í Sprotar, Vöxtur og Sérlausnir

XML-kostnaðarreikningar berast aðeins þegar viðskiptavinur Konto er í áskriftarleiðunum Sprotar, Vöxtur eða Sérlausnir. Bókarar sem vinna með viðskiptavini í áskriftarleiðinni Fræ sækja myndir og PDF-skjöl á gamla mátann: sjá leiðbeiningar um eldri tengingu.

Algengar spurningar um kostnaðarskráningar í dk

Af hverju skiluðu kostnaðarskráningar sér ekki í dk?

Aðeins reikningar með stöðuna Stofnað í Konto eru sóttir. Ef reikningurinn var þegar sóttur er staðan hans Bókað og hann er ekki sóttur aftur. Athugaðu einnig hvort útgáfudagsetning falli innan valins tímabils — eða hvort reikningurinn hafi verið skráður á tímabilinu.

Ég sótti rangt tímabil — hvað geri ég?

Þú getur sótt aftur fyrir rétt tímabil. Reikningar sem þegar hafa færst yfir í dk (með stöðuna Bókað í Konto) verða ekki sóttir aftur nema þeim sé eytt úr dk fyrst.

Get ég sótt sama reikning aftur?

Já, ef honum var eytt úr „Óstaðfestir rafrænir reikningar“ í dk geturðu opnað kostnaðinn í Konto, breytt honum og samþykkt aftur. Hann fær þá stöðuna Stofnað og skilar sér yfir næst þegar þú sækir.

Hvað þýðir rauða táknið?

Lánardrottinn á reikningnum er ekki til í dk. Hægrismelltu á reikninginn og veldu „Stofna lánardrottinn“.

Hvað þýðir gula táknið?

VSK-línu á reikningnum vantar bókunarskilgreiningu. Hægrismelltu á VSK-línuna og veldu „Nota sjálfgefna bókunarskilgreiningu frá lánardrottni“ (Ctrl+D) eða „Búa til bókunarskilgreiningu“ (Ins). Skilgreiningin vistast og er notuð sjálfkrafa næst.

Hvernig leiðrétti ég gengi á erlendum reikningi?

Í „Óbókaðir reikningar lánardrottna“ geturðu breytt genginu handvirkt áður en þú bókar. Notaðu t.d. VISA-yfirlit til að finna rétt gengi á greiðsludegi.

Kortafærslur eða erlendar greiðslur lenda á röngum lánardrottni — hvað geri ég?

Þetta er leyst með safnlánardrottnum og sérnúmerum. Sjá leiðbeiningar um safnreikninga og sérnúmer.

Spurningar? support@konto.is