Haltu utan um verk í Konto: tösk, kostnaður og reikningar

Leiðbeiningar · Verk

Haltu utan um verk í Konto: tösk, kostnaður og reikningar

Þegar þú stofnar verk í Konto verður verksíðan að miðstöð alls sem tengist viðkomandi verkefni. Þar eru tösk, kostnaðarskráningar, vörulínur og reikningar á einum og sama stað. Hér sýnum við þér hvernig þú tengir kostnað frá birgjum, fylgist með töskunum og útbýrð reikninga beint úr verkupplýsingunum. Gert er ráð fyrir að þú hafir þegar lokið hluta 2: Stofna verk.

  1. 1

    Verk í Konto: yfirlit með tölum og stöðu

    Farðu í Aðgerðir og umsjón → Verk og opnaðu verkið. Flipinn „Yfirlit” sýnir þér á einum stað: áætlaða heildarupphæð, reikningsfærðar tekjur, útistandandi upphæð, fjölda töskin og núverandi stöðu verksins.

    Verk í Konto: yfirlit með tölum og stöðu
  2. 2

    Flipinn „Töskin“: tösk og skráðar stundir

    Smelltu á flipann „Töskin“. Þar birtast öll tösk verksins — bæði línur úr umfangi og tösk sem búin hafa verið til í Tasklistanum — með skráðum stundum við hvert og eitt.

    Smelltu á „Búa til nýtt task“ til að opna taskformið — sjá næsta skref.

    verk í Konto: Flipinn „Töskin“: tösk og skráðar stundir
  3. 3

    Búa til nýtt task tengt verki í Konto

    Taskformið opnast í Tasklistanum og þetta verk er þegar valið í „Verkefni (valkvætt)” — þú þarft því ekki að velja það handvirkt.

    Fylltu út heiti tasksins og veldu þjónustu úr vörulista ef við á. Tímaskráning fer síðan fram í Tasklistanum — sjá hluta 1 um Tasklistann og tímaskráningu.

    verk í Konto: Búa til nýtt task tengt verki í Konto
  4. 4

    Flipinn „Kostnaður“: kostnaður verksins og „Nýr kostnaður“

    Smelltu á flipann „Kostnaður“ á verksíðunni. Hér birtist allur kostnaður sem er tengdur verkinu. Í dálkinum Samtala setur þú inn upphæðina sem þú ætlar að reikningsfæra á viðskiptavininn.

    Smelltu á „Nýr kostnaður“ til að bæta við kostnaði. Valmyndin býður upp á þrjá kosti:

    • „Hlaða upp kostnaði“ — opnar Kostnaðarskráningu svo þú getir hlaðið upp kvittun eða reikningi frá birgja fyrir verkið.
    • „Handskráður kostnaður“ — bætir kostnaðarlínu beint á verkið án þess að fara í gegnum Kostnaðarskráningu. Hentar vel fyrir útlagðan kostnað þegar kvittun er ekki til í kerfinu.
    • „Tengja kostnaðarfærslu“ — tengir skráningu sem þegar hefur verið samþykkt í Kostnaðarskráningu við verkið.

    Einnig er hægt að tengja kostnað við verkið um leið og skráning er samþykkt — sjá næsta skref.

    verk í Konto: Flipinn „Kostnaður“: kostnaður verksins og „Nýr kostnaður“
  5. 5

    Tengja kostnaðarskráningu við verk í Konto

    Kostnað frá birgjum má líka tengja við verkið um leið og hann er samþykktur. Farðu í Kostnaðarskráningu í aðalvalmyndinni, finndu skráninguna frá birgjanum sem er í stöðunni Nýtt og opnaðu hana.

    Veldu viðeigandi verk í reitnum „Tengja við verk...” — eins og sést á myndinni — og smelltu á „Skrá sem samþykkt”. Skráningin tengist þá verkinu og birtist á flipanum „Kostnaður”. Mikilvægt er að velja verk áður en skráningin er samþykkt. Ef hún hefur þegar verið samþykkt notarðu „Tengja kostnaðarfærslu” undir „Nýr kostnaður” á flipanum „Kostnaður” (sjá fyrra skref).

    Tengja kostnaðarskráningu við verk í Konto
  6. 6

    Flipinn „Vörur“: vörulínur og þjónusta

    Farðu aftur á verksíðuna og smelltu á flipann „Vörur“. Hann sýnir allar vörulínur og þjónustulínur sem eru hluti af umfangi verksins. Smelltu á „Bæta við vöru / línu“ til að bæta við nýrri línu.

    verk í Konto: Flipinn „Vörur“: vörulínur og þjónusta
  7. 7

    Flipinn „Reikningar“: tómur þar til reikningur er tengdur

    Smelltu á flipann „Reikningar (0)“ á verksíðunni. Hér birtast allir sölureikningar verksins ásamt greiðslustöðu. Á meðan enginn reikningur er tengdur stendur hér „Ekki búið að tengja sölureikning við verkefnið.“

    Ef þú hefur þegar stofnað reikning annars staðar tengirðu hann við verkið með „Tengja sölureikning“. Í næstu skrefum búum við til reikning beint úr verkinu og hann birtist þá sjálfkrafa hér.

    verk í Konto: Flipinn „Reikningar“: tómur þar til reikningur er tengdur
  8. 8

    Útbúa reikning beint úr verki í Konto

    Smelltu á „Útbúa nýjan reikning út frá verkupplýsingum”. Þá opnast gluggi sem sýnir allt sem hefur ekki enn verið reikningsfært: skráðar stundir, vörulínur og þann kostnað sem þú ætlar að reikningsfæra á viðskiptavininn.

    Veldu þær línur sem á að taka með og smelltu á „Stofna reikning út frá verkinu”. Reikningurinn opnast þá tilbúinn með upplýsingum viðskiptavinarins og völdum línum úr verkinu.

    verk í Konto: Útbúa reikning beint úr verki í Konto
  9. 9

    Senda reikninginn með kröfu í netbanka

    Reikningurinn er þegar útfylltur með upplýsingum um viðskiptavininn og línum úr verkinu. Gakktu úr skugga um að allar upplýsingar séu réttar — upphæð, gjalddagi og eindagi — áður en þú sendir.

    Verknúmerið fylgir reikningnum sjálfkrafa sem tilvísun fyrir bókhald viðskiptavinarins. Þegar allt lítur rétt út smellirðu á „Yfirfara og senda”.

    verk í Konto: Senda reikninginn með kröfu í netbanka
  10. 10

    Flipinn „Reikningar“: greiðslustaða og stöðubreytingar

    Nú sérðu reikninginn á flipanum „Reikningar“ ásamt greiðslustöðu hans.

    Þú getur breytt stöðu verksins beint hér í „Í bið“ eða „Lokið“. Einnig er hægt að eyða verkinu með því að velja „Eyða verki“.

    Skrár, athugasemdir og breytingasaga verksins eru einnig aðgengilegar á verksíðunni. Næst í röðinni: hluti 4 — verksíða og verkskýrsla fyrir viðskiptavininn og hluti 5 — aukanotendur í Tasklistanum.

    verk í Konto: Flipinn „Reikningar“: greiðslustaða og stöðubreytingar

Verknúmerið fylgir reikningnum sjálfkrafa

Þegar þú útbýrð reikning úr verki í Konto bætir kerfið verknúmerinu sjálfkrafa við sem tilvísun. Viðskiptavinurinn getur notað það til að para reikninginn við verkið í sínu bókhaldi.

Tvær leiðir til að tengja kostnað við verk í Konto

Þú getur tengt kostnað við verk á tvo vegu: (1) Í Kostnaðarskráningu þegar þú samþykkir nýja skráningu — veldu þá verk í „Tengja við verk...“ áður en hún er samþykkt. (2) Á flipanum „Kostnaður“ á verksíðunni með því að smella á „Nýr kostnaður“ og velja „Tengja kostnaðarfærslu“, ef skráningin hefur þegar verið samþykkt. Einnig er hægt að bæta kostnaðarlínu beint við verkið með því að velja „Handskráður kostnaður“ undir „Nýr kostnaður“ á sama flipa.

Verk-viðbótin er í áskriftinni Vöxtur

Verk-viðbótin er í boði í áskriftinni Vöxtur (og Pro). Allir sem eru með Verk-viðbótina fá sjálfkrafa aðgang að Tasklistanum. Tasklistinn er einnig í boði sem sérstök viðbót í áskriftinni Sprotar, án Verk-viðbótarinnar.

Algengar spurningar um verk í Konto

Hver er munurinn á töskum og umfangi verks í Konto?
Umfang verksins samanstendur af þjónustu- og vörulínum sem skilgreindar eru þegar verkið er stofnað. Tösk eru einstakar vinnulínur í Tasklistanum sem geta tengst verkinu og haldið utan um skráðar stundir. Báðar tegundir birtast á flipanum „Töskin“ á verksíðunni.
Fylgir Tasklistinn með þegar ég kaupi Verk-viðbótina?
Já, allir sem eru með Verk-viðbótina fá sjálfkrafa aðgang að Tasklistanum. Tasklistinn er einnig í boði sem sérstök viðbót í áskriftinni Sprotar, án Verk-viðbótarinnar.
Get ég tengt kostnað við verk eftir að ég hef samþykkt skráninguna?
Já. Á flipanum „Kostnaður“ á verksíðunni er hægt að smella á „Nýr kostnaður“ og velja „Tengja kostnaðarfærslu“ til að tengja skráningar sem þegar hafa verið samþykktar. Ef skráningin er enn í stöðunni „Nýtt“ er þægilegra að tengja hana við verk í reitnum „Tengja við verk...“ áður en hún er samþykkt — þá fer hún beint á kostnaðarflipann.
Get ég reikningsfært hluta verksins og sent aðra reikninga síðar?
Já. Þegar þú smellir á „Útbúa nýjan reikning út frá verkupplýsingum“ velurðu hvaða línur á að taka með á reikninginn. Þær línur sem þú skilur eftir geturðu svo reikningsfært síðar.
Hvernig skilar verknúmerið sér á reikninginn?
Konto setur verknúmerið sjálfkrafa inn sem tilvísun þegar þú útbýrð reikning beint úr verkupplýsingunum. Viðskiptavinurinn sér þessa tilvísun á mótteknum reikningi og getur notað hana til að rekja greiðsluna í sínu bókhaldi.
Get ég breytt stöðu verksins á verksíðunni?
Já. Á flipanum „Reikningar“ á verksíðunni geturðu valið stöðuna: Í bið eða Lokið. Þú þarft ekki að fara í sérstakar stillingar — breytingin er gerð beint á verksíðunni.

Spurningar? support@konto.is