Safnreikningar og sérnúmer: Tengja kostnað við safnlánadrottna í dk

Leiðbeiningar · Umboðsaðilar

Safnreikningar og sérnúmer: Tengja kostnað við safnlánadrottna í dk

Hér sýnum við þér hvernig þú stofnar safnlánadrottna í dk og skráir sérnúmer í Konto til að bóka erlend gjöld og kortafærslur sjálfkrafa á réttan stað. Leiðbeiningarnar eru ætlaðar umboðsaðilum sem halda utan um bókhald Konto-viðskiptavina í dk. Gakktu úr skugga um að tengingin við dk og sjálfvirk kostnaðarskráning séu virkjaðar — sjá leiðbeiningar 1 og leiðbeiningar 2.

  1. 1

    Stofnaðu safnlánadrottna í dk

    Í dk stofnar þú safnlánadrottna fyrir erlend gjöld og kortafærslur — t.d. 0000000001 Debetkort og 0000000002 Kreditkort. Á flipanum Gjaldmiðlar hakar þú við „Nota gjaldmiðil“ og stillir Gjaldmiðil á ISK, svo hægt sé að stilla gengi við bókun. Þetta krefst viðbótarinnar Gjaldmiðlar í dk — sjá leiðbeiningar 1.

    Stofnaðu safnlánadrottna í dk
  2. 2

    Stilltu sjálfgefið sérnúmer á stjórnborði umboðsaðila

    Á Stjórnborði umboðsaðila smellir þú á breytingartáknið við hlið viðskiptavinarins. Í reitinn „Sérnúmer fyrir erlenda lánadrottna“ skráir þú númer viðeigandi safnlánadrottins — t.d. 0000000002 ef erlendir reikningar eiga að fara á safnlánadrottin fyrir kreditkort. Smelltu á „Vista“. Ef reiturinn er tómur notar Konto sjálfgefna númerið 1111111119.

    Stilltu sjálfgefið sérnúmer á stjórnborði umboðsaðila
  3. 3

    Farðu í Mínir lánadrottnar/birgjar

    Í Konto ferðu í Aðgerðir og umsjón → Mínir lánadrottnar/birgjar. Þar sérðu lista yfir alla lánadrottna og birgja sem hafa komið inn í kerfið.

    Farðu í Mínir lánadrottnar/birgjar
  4. 4

    Veldu þá lánadrottna sem þú vilt stilla

    Hakaðu við þá lánadrottna sem þú vilt skrá sérnúmer á. Þú getur valið marga í einu og stillt þá alla í einu lagi.

    Veldu þá lánadrottna sem þú vilt stilla
  5. 5

    Skráðu sérnúmer fyrir hvern lánadrottin

    Smelltu á „Skrá sérnúmer fyrir lánadrottin“. Í glugganum „Stilla sérnúmer fyrir lánadrottna“ stillir þú:

    • Sérnúmer 1 — þegar greitt er með debetkorti eða millifærslu (t.d. 0000000001).
    • Sérnúmer 2 — þegar greitt er með kreditkorti (t.d. 0000000002).

    Erlendir seljendur sem eiga sérstakan lánadrottin í dk fá það númer skráð í Sérnúmer 1. Breytingar gilda aðeins um reikninga sem berast eftir vistun.

    Skráðu sérnúmer fyrir hvern lánadrottin

Fyrsti reikningur frá nýjum erlendum seljanda

Þegar fyrsti reikningur berst frá erlendum seljanda sem hefur ekkert sérnúmer fær hann sjálfgefna númerið 1111111119. Umboðsaðilinn getur þá annaðhvort bókað hann á sjálfgefna safnlánadrottininn eða stofnað sérstakan lánadrottin í dk og skráð það númer í Sérnúmer 1 — næstu reikningar fara þá sjálfkrafa á réttan stað.

Þegar greiðslumáti skiptir máli

Ef reikningar frá seljanda eru stundum greiddir með debetkorti og stundum með kreditkorti skaltu fylla inn bæði Sérnúmer 1 og Sérnúmer 2. Slökktu þá á sjálfvirku samþykki svo greiðslumátinn á kostnaðinum ráði hvaða númer er notað — sjá leiðbeiningar 2.

Innlendir seljendur þurfa yfirleitt ekki sérnúmer

Innlendir seljendur eru sjálfkrafa bókaðir á eigin kennitölu og þurfa ekki sérnúmer. Ef þú vilt þó að ákveðinn innlendur seljandi fari á safnlánadrottin geturðu notað Sérnúmer 1 eða Sérnúmer 2 á sama hátt og fyrir erlenda seljendur.

Algengar spurningar

Hvað er númerið 1111111119?
Þetta er sjálfgefið sérnúmer sem Konto notar fyrir erlenda reikninga þegar ekkert sérnúmer hefur verið stillt. Það vísar á sjálfgefinn safnlánadrottin í dk. Þegar þú stillir annað númer á Stjórnborði umboðsaðila eða undir Mínir lánadrottnar/birgjar kemur það í stað sjálfgefna númersins.
Þurfa innlendir reikningar sérnúmer?
Yfirleitt ekki. Innlendir seljendur eru sjálfkrafa bókaðir á eigin kennitölu í dk. Sérnúmer eru fyrst og fremst notuð til að bóka erlenda reikninga á safnlánadrottin — eða til að vísa ákveðnum innlendum seljanda á safnlánadrottin ef þess er óskað.
Hvenær skiptir máli hvort greitt er með debet- eða kreditkorti?
Þegar bæði Sérnúmer 1 og Sérnúmer 2 eru stillt ræður stillingin „hvernig greitt“ á kostnaðinum í Konto því hvaða safnlánadrottinn er notaður. Til að þetta virki þarftu að slökkva á sjálfvirku samþykki og samþykkja kostnaðinn handvirkt — sjá leiðbeiningar 2.
Hefur breyting á sérnúmeri áhrif á eldri reikninga?
Nei. Breytingar á sérnúmeri gilda aðeins um reikninga sem berast eftir að stillingin er vistuð. Eldri reikningar sem þegar eru í Konto breytast ekki.
Get ég gefið erlendum seljanda sitt eigið númer í dk?
Já. Stofnaðu lánadrottin í dk með því númeri sem þú vilt nota og skráðu það í Sérnúmer 1 hjá viðkomandi seljanda undir Mínir lánadrottnar/birgjar. Framvegis fara reikningar frá þeim seljanda beint á þann lánadrottin í stað sjálfgefna safnlánadrottinsins.
Þarf viðskiptavinurinn að vera í ákveðinni áskrift?
Já. Sjálfvirk kostnaðarskráning með XML-reikningum er í boði í áskriftunum Sprotar, Vöxtur og Sérlausnir. Bókarar sem vinna með viðskiptavini í áskriftinni Fræ halda áfram að sækja myndir og PDF-skjöl á hefðbundinn hátt — sjá nánar hér.

Spurningar? support@konto.is