Kaupendur
Stillingar fyrir móttöku reikninga
Nú getur þú stýrt því hvernig þú birtist sem greiðandi hjá öðrum notendum (reikningsútgefendum) í Konto. reikningar útgefnir í Konto skila sér til þín þegar þú ert kaupandi. Einfalt einnig að skrá lista fyrir GLN kostnaðarstaði til að auðvelda sjálvirknivæðingu í AP bókhaldinu (kostnaðarskráningu).
ATH: Þessi viðbót er í boði fyrir notendur í Grunnur (ókeypis). En, til þess að vista stillingar verður notandi að staðfesta með auðkenningu á island.is
Þú einfaldlega skráir inn upplýsingar um þig sem greiðanda og hvernig þú vilt móttaka reikninga.
Til þess að nýta þessa viðbót þarftu að virkja þjónustuna Skrá stillingar fyrir móttöku reikninga.
Eftir að hafa virkjað þessa viðbót bætist við valmöguleiki undir Stillingar.
Þegar þessi viðbót er virk, þá getur þú sem notandi skráð sjálfgefin gildi fyrir það hvernig þú vilt móttaka reikninga. Ef þú vilt fá rafrænan reikninga, með 30 greiðslufrest og láta nonna@email.is fá afrit af pdf – þá stillir þú það með þessu.
Kaupendur geta valið að stilla GLN Kostnaðarstaði – svo að reikningar sendir á þá muni alltaf vera með skilgreindan kostnaðarstað og GLN númer fyrir sjálfvirkni í bókun á kostnaði.
GLN listinn sem kaupendur bjóða uppá birtist seljendum sem vallisti þegar viðkomandi setur upp kaupanda sem viðskiptavin á konto.is. Stillingar fyrir greiðslufrest, netfang og hvert skal senda XML skeytið kemur sjálfkrafa inn þegar notandi slær in kennitölu kaupanda.
Notendur nýta Sjálfgefinn kostnaðarstaður sem það gildi kemur þá sjálfkrafa inn í reitinn Kostnaðarstaður í reikningsforminu, en seljandi getur auðveldlega uppfært þetta gildi þegar verið er að útbúa nýjan reikning. Vallistinn passar að það er einungis hægt að velja gild GLN númer og númerið skráist á réttan stað í xml reikningi, sem gerir kaupendum kleift að treysta betur á sjálfvirkni í bókun á kostnaði.
Fyrir lengra komna, þá er einnig hægt að stilla upp vörulista. Notendur á Konto geta þá valið úr vörulista ykkar þegar á að senda ykkur reikning – þetta getur einnig hjálpað með sjálvirkni í bókun reikninga.
Stofnaður reikninga þar sem þú ert greiðandi
Þú sem greiðandi, getur stofnað reikning með stöðuna “Vistað” hjá þeim aðila (sem notar Konto) sem þú vilt að sendi þér reikning. Þá stofnar þá í raun drög að reikning hjá viðkomandi seljanda vegna ákveðinnar sölu. Seljandinn þarf síðan að samþykkja reikninginn og gefa hann út. Með þessu getur þú verið 100% viss um að rafræni reikningurinn flæði rétta leið og hægt sé að bóka hann sjálfkrafa í þínu viðskiptakerfi.
Til þess að nýta þessa nýjung þarftu að virkja þjónustuna Stofna vistaðan reikning hjá öðrum.
Ef skráð kennitala er til í kerfinu, þá vær viðkomandi tilkynningu og reikningurinn sem þú útbýrð verður vistaður sem Drög hjá þessum notanda.
Þú getur einnig valið að senda á netfang. Ef viðkomandi netfang er ekki skráð sem notandi í kerfinu, þá sendum við boð um skráningu. Þetta hjálpar þér að móttaka rétta rafræna reikninga og spara með sjálfvirkni í bókun á kostnaði.
Senda pantanir á Konto notendur
Nú er í boði að stofna innkaupapöntun hjá öðrum Konto notendum. Með öðrum orðum þá gerir það þér kleift að senda öðrum notendum pantanir fyrir vörum eða þjónustu í gegnum Konto. Þú getur verið viss um að fá rétt vöruheiti, númer og tilvísun á viðkomandi rafrænum reikningi sem berst í kjölfarið sem einfaldar sjálfvirka bókun í þínu viðskiptakerfi. Jafnframt geturðu verið viss um að hann muni berast rétta leið í gegnum skeytamiðil, ef við á.
Til þess að nýta þessa nýjung þarftu að virkja þjónustuna Senda inn pantanir.
(Einungis er í boði að stofna pantanir og beiðnir í gegnum einföld API köll)