fbpx

Hverjar eru áskriftarleiðirnar hjá Konto og hvernig virka þær?

Þú byrjar í ókeypis áskriftarleið (Grunnur) sem felur í sér 3 reikninga á mánuði. Svo getur þú valið að fara í greidda áskrift sem felur í sér fleiri reikninga á mánuði og ýmsa viðbótarvirkni og/eða keypt auka inneign fyrir reikningagerð. Auka inneign færist á milli mánaða og gildir í 4 ár.

Hér er hægt að skoða verðskrá og einfalt yfirlit: https://heim.konto.is/pricing/

Grunnur

Grunnur áskrift er fyrir þá sem þurfa að senda allt að 3 reikninga (XML eða PDF) á mánuði og þurfa enga viðbótarþjónustur. Kröfustofnun (reikningur í netbanka) innifalin og hægt að kaupa staka reikninga. Grunnur áskriftin er ókeypis.

  • Bankatenging – gerir þér kleift að senda reikning í netbanka hjá greiðanda. Einföld og örugg leið til þess að fá greitt. Ef ekki er greitt og eindagi er liðinn, þá reiknast vextir og mögulegt er að stilla svo að reikningar fari beint í sjálfkrafa innheimtuferli – þar sem þú færð greiddan kostnaðinn, en ekki eitthvað innheimtufélag.
  • Umboðsaðili (fyrir bókara) – fyrir notendur sem vilja hafa umboð með öðrum notendum á Konto. Fyrir bókara, til dæmis, þar sem auðvelt er að smella á milli notenda til að taka út skýrslur, skrá kostnað, viðskiptavin, vöru, kreditreikning eða nýjan sölureikning. Umboðsaðilar geta notað Konto kerfið frítt, en aðrir notendur þurfa að vera í greiddri áskrift, til dæmis FRÆ, til þess að geta veitt þriðja aðila umboð.
  • Stilla móttöku reikninga – fyrir kaupendur sem vilja stilla það hvernig þau fá reikninga frá notendum Konto. Stórkaupendur geta einnig valið að stilla GLN auðkenni / Kostnaðarstaði svo að notendur Konto þurfi að velja þessi gildi þegar á að senda þeim XML reikninga, svo hægt sé að bóka kostnaðinn með aukinni sjálfvirkni.

Fræ

Fræ áskrift er fyrir þá sem þurfa að senda allt að 10 reikninga á mánuði. Allt það sama og í Grunnur áskriftinni innifalið auk m.a. skýrslur, hreyfingalisti, áskriftarreikningar og kostnaðarskráning. Fræ áskriftin er 1.990 + VSK á mánuði.

  • Tilboðsgerð – fyrir notendur sem vilja geta sent tilboð á sína viðskiptavini. Auðvelt að breyta tilboðum, gera önnur alveg eins og svo gera reikninga út frá tilboðinu til að flýta fyrir.
  • Afhendingarseðlar – fyrir notendur sem vilja geta gefið út afhendingaseðla í stað þess að vera með reikning með hverri afhendingu. Auðvelt að draga saman fjölda afhendinga til að búa til einn reikning.
  • Sölugreining – fyrir notendur sem vilja geta skráð kostnaðarverð vöru og greint framlegð. Með sölugreiningu viðbótinni er einnig hægt að tengjast Konto í gegnum viðskiptagreind og greiningartól eins og Power BI frá Microsoft.
  • Veita þriðja aðila aðgang – fyrir þá sem vilja geta veitt bókara eða þriðja aðila aðgang svo þau geti séð um þetta fyrir þig. Frábært fyrir þá sem vilja setja völdin í hendur bókara en geta samt einfaldlega búið til nýja viðskiptavini, vörur, reikninga og skráð kostnað.
  • Skýrslur og hreyfingalistar – fyrir þá sem vilja geta keyrt út skýrslur og sótt upplýsingar um sölu og kostnað, bæði niður á einstaka viðskiptavini og niður á tímabil.
  • Sölusíður fyrir vörur og námskeið – einföld leið til að setja upp sölusíðu þar sem kaupendur skrá upplýsingar um sig og panta vöruna eða námskeiðið. Upplýsingar notaðar til að skrá nýjan viðskiptavin, stofna reikning í netbanka og senda tilkynningu á netfang viðkomandi.
  • Vefþjónusta og API KEY – fyrir þá sem vilja tengja vefverslun eða önnur þriðja aðila kerfi við Konto í þeim tilgangi að búa til reikninga eða sækja upplýsingar fyrir vinnslu í öðru kerfi. Frábær Konto viðbót fyrir WooCommerce hjálpar vefverslunum að bjóða upp á að stofna reikninga í netbanka og flytja inn allar pantanir til að búa til sölureikning fyrir bókhaldið.
  • Hópar – einföld leið til að halda utanum hópa af viðskiptavinum. Búðu til einn reikning, sendu á hópinn og kerfið útbýr reikning fyrir hvern og einn viðskiptavin í hópnum.
  • Áskriftarreikningar – fyrir þá sem vilja senda út eins reikning reglulega. Sendu vikulega, mánaðarlega, ársfjórðungsfresti, tvisvar á ári eða einu sinni á ári. Sameinaðu með Hópar virkninni og sendu áskríftarreikning á hópinn og sjáðu hvernig þetta bara gerist allt sjálfvirkt fyrir þig.
  • Vísitölutenging fyrir leigusamninga – mögulegt er að tengja áskriftarreikninga við vísitölu neysluverðs svo að upphæðin á reikningi hækkar í samræmi við þróun á vísitölu.
  • Kostnaðarskráning – einföld leið fyrir notendur til að skrá kostnað fyrir bókhaldið og nýta vsk-inn af kostnaði. Mögulegt að taka mynd af kvittunum og reikninginum og skrá sem viðhengi með kostnaðarfærslu – hlekkur á viðhengi fylgir svo skýrslum þegar bókarar taka þetta út.
  • Lagerstaða – fyrir þá sem vilja halda utan um lagerstöðu. Mögulegt að skrá niður á lotunúmer og síðasta neysludag, svo stilla inn að fá tilkynningar þegar nálgast síðasta neysludag. Þetta hjálpar þér að fylgjast með lagerstöðu og koma vörum í sölu áður en þær renna út og rýrna.

Sprotar

Sprotar áskrift er fyrir þá sem þurfa að senda allt að 25 reikninga á mánuði. Allt það sama og í Fræ áskriftinni innifalið auk m.a. aðstoðar í símaþjónustu og möguleika á að senda pantanir. Sprotar áskriftin kostar 4.490 + VSK á mánuði.

  • Stofna reikning hjá öðrum – fyrir þá sem vilja geta stofnað reikninga hjá öðrum notendum, þar sem þú ert greiðandinn. Þetta hjálpar aðilum eins og íþróttafélögum sem vilja fá alla þjálfara til að byrja að senda sér XML reikninga svo hægt sé að auka sjálfvirkni í ferlinu. Kaupandinn er því að hjálpa litlu seljendunum að komast af stað með nýtt kerfi og nýtt ferli.
  • Senda pantanir á verktaka – fyrir þá sem vilja geta notað vefþjónustu í þeim tilgangi að senda inn pantanir á verktaka. Verktakar geta einfaldlega gert reikninga út frá upplýsingum í pöntun í ferli sem passar að allar upplýsingar fari inn í XML reikninginn, svo hægt verði að bóka kostnaðinn í sjálfvirku ferli hjá kaupanda.
  • Símaþjónusta – Konto aðstoð tekur upp síman og hringir í þig til að aðstoða sem best við getum.

Vöxtur

Vöxtur áskrift er fyrir þá sem þurfa að senda allt að 50 reikninga á mánuði. Allt það sama og í Sprotar áskriftinni innifalið auk möguleika á að tengja eigin SMTP þjónustu og þá senda reikninga frá eigin léni. Vöxtur áskriftin kostar 7.990 + VSK á mánuði.

  • Senda reikninga frá eigin léni (SMTP) – fyrir þá sem vilja að reikningar berist frá sínu netfangi en ekki bara tilkynning@konto.is

Sérlausnir

Sérlausnir áskriftin innifelur 150 reikninga á mánuði. Allt það sama og í Vöxtur áskriftinni er innifalið auk tengingar við ökutækjaskrá og annarra sérsmíðaðra tenginga. Hafðu samband og við finnum lausnina fyrir þig. Sérlausnir áskriftin kostar 14.490 + VSK á mánuði.

Kaupa auka inneign fyrir reikningaútgáfu

Þú getur valið hversu mikið af auka inneign þú vilt kaupa. Þeim mun fleiri sem þú kaupir, þeim mun ódýrara er stykkjaverðið.

Auka inneign færist á milli mánaðar (gildir í 4 ár), svo þú getur notað hana hvenær sem þér hentar.

Það hentar mörgum að vera í greiddri áskrift en síðan kaupa auka inneign þegar þörf er á, t.d. ef þú sendir mis marga reikninga eftir mánuðum eða sendir mjög marga reikninga (t.d netverslanir).

Hvernig þú stjórnar mörgum Konto aðgöngum með rafrænum skilríkjum.

Aðeins er hægt að senda reikninga frá einni kennitölu á hverjum Konto aðgangi. Það þarf því að stofna nýjan aðgang fyrir hverja kennitölu. Ástæðan fyrir þessu er sú að númeraröð reikninga á að vera hlaupandi og óslitin fyrir hverja kennitölu skv. bókhaldslögum.

Rafræn skilríki

Þegar þú stofnar nýjan aðgang með rafrænum skilríkjum þá eru þau sjálfkrafa tengd við þann aðgang. Ef þú ert með marga aðganga tengda við sömu rafrænu skilríkin þá spyr Konto þig eftir innskráningu inn á hvaða aðgang þú vilt skrá þig.

Ef þú ert með eldri aðgang sem þú vilt tengja við rafræn skilríki þá velur þú (eftir innskráningu) Stillingar > Lykilorð og rafræn skilríki – Tengja rafræn skilríki

Við mælum með því að þú notir rafræn skilríki fyrir innskráningu, enda öruggasta innskráningarleiðin.

Umboðsaðilaaðgangur (bókararaðgangur)

Notendur í greiddri áskrift að Konto geta veitt þriðja aðila (s.s. bókara) aðgang að sínum Konto notanda. Það er gert með að velja Stillingar – Veita þriðja aðila aðgang Slá inn netfang viðkomandi.

Nánar um að veita þriðja aðila aðgang hér.

Þeir sem nota gmail póstþjónustuna geta notað sama netfangið fyrir marga aðganga að Konto

Hver og einn notandi í Konto þarf að vera með einkvænt netfang enda er það einnig notendanafn viðkomandi. Það er því ekki hægt að skrá t.d. tvo notendur með netfangið netfang@mittlen.is.

En Gmail býður upp á að setja + á undan @ merkinu í netfangi. Sem dæmi þá væri hægt að skrá einn notanda í konto með netfang@mittlen.is. og annan með netfang+1@mittlen.is. Tölvupóstar sem eru sendir á netfang+1@mittlen.is skila sér á netfangið netfang@mittlen.is.

Svona Virka Konto Inneignir, er Inneigninn Búinn?

Svona virka Konto inneignir:

  1. Þú þarft að eiga inneign til að senda reikning.
  2. Í Grunnur áskrifarleiðinni (ókeypis) eru innifaldir þrír ókeypis reikningar á mánuði. Ef þú þarft að senda fleiri, þá getur þú keypt áskrift eða keypt auka-inneign fyrir reikningagerð.
  3. Fyrir þá sem þurfa að senda reglulega (t.d. mánaðarlega reikninga) og þurfa viðbótarþjónustur, þá hentar betur að vera í áskrift. Ef sendir eru óreglulega reikningar og ekki er þörf fyrir viðbótarþjónustur þá gæti hentað betur að kaupa auka-inneign.
  4. Inneign sem er innifalin í áskrift miðast bara við þann mánuð. En keypt auka-inneign færist á milli mánaða (lifir áfram).


Hægt er að velja áskriftarleið og/eða kaupa auka-inneign hérhttps://konto.is/strax/subscription-profile/plan


Hvernig á að Breyta Núverandi Áskriftarleið?

Innskráðir notendur geta farið inn á Áskriftir og inneignir. Í yfirliti fyrir núverandi stöðu er hægt að velja “Breyta”

Næst er valið að Afskrá / Óvirkja

Þetta færir notendur niður í ókeypis Grunnur áskriftina, þegar tímabilið fyrir greidda áskrift rennur út. Notendur geta svo valið að virkja nýja áskrift síðar án þess að hafa áhyggjur af því að tapa gögnum.

Hvernig á að senda reikning á staðgreitt

Til þess að senda staðgreiðslureikning, höfum við verið að mæla með því að stofna viðskiptavin með þinni kennitölu (notanda sem sendir reikninginn) og skýra viðskiptavininn Staðgreitt.

Þú getur sleppt því að hafa heimilisfang og netfang getur verið tómt (ef úttak er stillt á Prenta).

Veldu tungumál reiknings og gjaldmiðil.

Taktu svo hakið úr kröfustofnun eða greiðsluhlekkur, ef við á.

Vistaðu viðskiptavininn og sendu reikning á Staðgreitt.

Var einu sinni með Facebook eða island.is

Við breyttum innskráningarmöguleikum því island.is lokar fyrir aðra en opinbera aðila haustið 2024. Við mælum með að notendur notist frekar við rafræna auðkenningu (dokobit).

Gleymt lykilorð?

Smelltu á Gleymt lykilorð á innskráningarsíðunni og óskaðu eftir að fá hlekk og kóða sendan á það netfang sem tilheyrir þínum notanda á Konto.

Eftir að hafa skráð þig inn með netfang og lykilorði, farðu þá í Stillingar > Lykilorð og rafræn skilríki

Sjá nánar á: https://heim.konto.is/orugg-rafraen-audkenning/

Hvernig nýskrái ég mig inná Konto?

Nýskráning er mjög einföld, þú velur að “skrá þig frítt” upp í hægra horninu svo slærðu inn símanúmerið þitt og færð skilaboð í símann.

Að því loknu slærðu inn uppáhalds netfangið þitt, ásamt kennitölu. (kennitölu fyrirtækis ef þú ert að stofna aðgang fyrir fyrirtæki). Klárar svo þetta skref með því að samþykkja skilmála okkar.

Í næsta glugga er útfyllt sjálfkrafa nafn, kennitala og heimilisfang, svo eina sem þarf að gera er að fylla útí bankaupplýsingarnar.

Að lokum færðu svo val um hvort þú viljir virkja bankatenginu og innheimtuþjónustu. Við mælum með að virkja báðar viðbætur svo þú einfaldir fyrir kúnnum þínum að greiða og að þú fáir greitt á réttum tíma.

Núna hefur þú búið til aðgang hjá Konto!

Yfirlit yfir þínar reikningsupplýsingar.

Fyrsta skrefið eftir nýskráningu felst í því að skrá upplýsingar um þann sem kemur til með að gefa út reikningana – hvort sem það er fyrirtæki eða einstaklingur. Útgefinn reikningur verður merktur útgefanda með vörumerki (e. logo) og öllum tilheyrandi upplýsingum. Með því að smella á spurningarmerki (e. icon) er hægt að fá nánari lýsingu á öllum reitum í þessu skráningarformi.

Að skrá viðskiptavin

Þegar þú ert að gefa út reikning, þá er einhver kaupandi (viðskiptavinur). Konto er með viðskiptavinaspjöld þar sem upplýsingar um viðskiptavini eru skráðar, þ. m.t. hvernig viðkomandi vill móttaka reikninga (t.d. sem PDF á tölvupósti eða sem XML skeyti). Einnig er hægt að skrá upplýsingar um m.a. viðskiptaskilmála, og velja tungumál, gjaldmiðill og greiðslufrest.

Að skrá vöru

Þegar þú ert að gefa út reikning þá verður að vera einhver vara í vörulínu reiknings. Mögulegt er að skilgreina nýjar vörur þegar reikningur er útbúinn. Einnig er hægt að skrá vörur á vörulista. Fyrir þínar vörur skráir þú lýsingu, mælieiningu, VSK flokk og verð með/án VSK. Í vörulistanum er auðvelt að uppfæra vörur og afvirkja þær sem ekki eiga að birtast í vallista þegar verið er að útbúa nýjan reikning.

1 2 3 4