Gmail SMTP og APP Password

Þessar leiðbeiningar eru fyrir þá sem vilja senda reikninga með Konto frá sínu eigin netfangi og nota Gmail tölvupóstþjónustu

FORKRÖFUR
1. Vöxtur eða Sérlausnir áskrift að Konto
2. Notar Gmail til að senda reikninga frá eigin léni

SKREF 1 – Kveiktu á tveggja þátta auðkenningu fyrir Google aðganginn þinn
– Farðu í Stillingar (e. settings) fyrir Google aðganginn þinn (lénið sem þú vilt senda pósta frá)
– Veldu í Öryggi og innskráning (e. Security & sign-in)
– Veldu Tvíþætt staðfesting (e. 2-Step Verification) og fylgdu skrefunum til að virkja hana

How to turn on 2FA on Google account
#Google 2FA

SKREF 2Búðu til lykilorð fyrir forrit á Google aðganginum þínum
– Farðu í Tvíþætt staðfesting (e. 2-Step Verification) og veldu þar lykilorð fyrir forrit (e. app password)
– Settu inn nafn fyrir forrit t.d. Konto email (má vera hvað sem er) og veldu búa til (e. create)
– Þá birtist lykilorð á skjánum sem þú skal afrita (e. copy)

How to create app password in Google settings
#App password in Google

SKREF 3 – Kláraðu uppsetningu í Konto
– Opnaðu Konto aðganginn þinn og veldu Stillingar > Sendu reikning frá þínu léni > Halda áfram
– Settu inn stillingar eins og á myndinni, m.a. lykilorð fyrir forrit sem þú bjóst til í skrefinu á undan
– Smelltu á Vista
– Skoðaðu hvort að póstur hafi ekki örugglega borist á test netfangið sem þú skráðir

Settings for sending email in Konto from own email (domain)
#Stillingar fyrir SMTP

Allt klárt!

Ef þú ert með spurningar um sendingu reikninga frá eigin netfangi í Konto eða lendir í vandræðum með uppsetningu þá endilega sendu okkur póst á netfangið support@konto.is

Sölugreining viðbótin

Með sölugreiningu viðbótinni virkjast auka reitur á vöruspjaldi fyrir Kostnaðarverð vöru. Einnig er opnað fyrir aðgang að gögnum úr Konto til að tengja greiningartól eins og Power BI.

Skráð gildi á vöruspjaldi birtist sem sjálfgefið gildi á senda reikning forminu

Svo er hægt að uppfæra þetta gildi þegar verið er að útbúa reikninginn. Gildið á reikningi er það sem þú færð í gögnum fyrir greiningartólið.

API skjölun hér: https://konto.is/api/v1/document#dashboard-data-detail-invoice-object

Þú finnur upplýsingar um notanda og API lykil undir viðbótinni Vefþjónusta á konto.is

Til að tengjast frá greiningartólum, veldu data source = web

Undir Advanced möguleikum, sláðu inn þessa slóð:

  • https://konto.is/api/v1/get-dashboard-data

Bættu við header parameters fyrir notanda og lykil –

  • username
  • api_key

Hlaða inn vörulista

Í Konto er mögulegt að hlaða inn þínum vörulista, t.d. úr bókhaldskerfi.

Til að gera það velurðu: Vörulisti – Hlaða inn lista úr Excel.

Því næst opnarðu Excel skrána og færir þar inn upplýsingar um vörulistann þinn.

Þú verður að fylla út dálka A-E: Vörunúmer, Lýsing, Eining, VSK og Einingaverð (án VSK).

Dálkarnir F og G (Flokkur og Virkur) eru valkvæðir.

  • Vörunúmer getur innifalið bæði tölu og bókstafi
  • Eining þarf að vera eitt af eftirfarandi
    • stk
    • kg
    • m
    • Dagar
    • klst
    • min
    • m2
    • m3
    • km
  • Í reitinn VSK þarf að skrá S, AA eða Z.
    • S = 24%
    • AA = 11%
    • Z = 0%
  • Einingaverð (án VSK) skal skráð án þess að nota kommur eða punkta.
  • Flokkur er valkvætt
  • Virkur er valkvætt (1 = virk, 0 = óvirk). Ef vara er merkt sem óvirk þá birtist hún ekki sem valmöguleiki þegar þú ert að stofna reikning.

Sjá óútfyllt excel skjal hér.

1 2 3 4