Lengra komin
Sölugreining viðbótin
Með sölugreiningu viðbótinni virkjast auka reitur á vöruspjaldi fyrir Kostnaðarverð vöru. Einnig er opnað fyrir aðgang að gögnum úr Konto til að tengja greiningartól eins og Power BI.
Skráð gildi á vöruspjaldi birtist sem sjálfgefið gildi á senda reikning forminu
Svo er hægt að uppfæra þetta gildi þegar verið er að útbúa reikninginn. Gildið á reikningi er það sem þú færð í gögnum fyrir greiningartólið.
API skjölun hér: https://konto.is/api/v1/document#dashboard-data-detail-invoice-object
Þú finnur upplýsingar um notanda og API lykil undir viðbótinni Vefþjónusta á konto.is
Til að tengjast frá greiningartólum, veldu data source = web
Undir Advanced möguleikum, sláðu inn þessa slóð:
- https://konto.is/api/v1/get-dashboard-data
Bættu við header parameters fyrir notanda og lykil –
- username
- api_key
Hlaða inn vörulista
Í Konto er mögulegt að hlaða inn þínum vörulista, t.d. úr bókhaldskerfi.
Til að gera það velurðu: Vörulisti – Hlaða inn lista úr Excel.
Því næst opnarðu Excel skrána og færir þar inn upplýsingar um vörulistann þinn.
Þú verður að fylla út dálka A-E: Vörunúmer, Lýsing, Eining, VSK og Einingaverð (án VSK).
Dálkarnir F og G (Flokkur og Virkur) eru valkvæðir.
- Vörunúmer getur innifalið bæði tölu og bókstafi
- Eining þarf að vera eitt af eftirfarandi
- stk
- kg
- m
- Dagar
- klst
- min
- m2
- m3
- km
- Í reitinn VSK þarf að skrá S, AA eða Z.
- S = 24%
- AA = 11%
- Z = 0%
- Einingaverð (án VSK) skal skráð án þess að nota kommur eða punkta.
- Flokkur er valkvætt
- Virkur er valkvætt (1 = virk, 0 = óvirk). Ef vara er merkt sem óvirk þá birtist hún ekki sem valmöguleiki þegar þú ert að stofna reikning.
Sjá óútfyllt excel skjal hér.